Innlent

Reyna enn að ná í mann sem er grunaður um að svið­setja bíl­slys

Jón Þór Stefánsson skrifar
Slysið sem mennirnir eru taldir hafa sett á svið er sagt hafa átt sér stað á gatnamótum Breiðhellu og Gjáhellu í Hafnarfirði.
Slysið sem mennirnir eru taldir hafa sett á svið er sagt hafa átt sér stað á gatnamótum Breiðhellu og Gjáhellu í Hafnarfirði. Vísir/Vilhelm

Lögbirtingablaðið hefur í annað skipti birt fyrirkall á hendur manni sem er talinn vera á Ítalíu vegna ákæru á hendur honum. Maðurinn er ákærður, ásamt öðrum manni sem er með skráð lögheimili í Reykjavík, um að setja á svið umferðarslys á gatnamótum Breiðhellu og Gjáhellu í Hafnarfirði þann 5. apríl 2021.

Mennirnir eru grunaðir um fjársvik, en þeir eru taldir hafa sviðsett slysið til þess að svíkja út vátryggingabætur á grundvelli kaskótryggingar og lögboðinnar ökutækjatryggingar vegna skemmda á tveimur bílum.

Í ákæru segir að annar maðurinn hafi ekið bíl norður Gjáhellu og stöðvað akstur við gatnamótin við Breiðhellu í um það bil fjörutíu sekúndur, þar til hann ók bifreiðinni hægt í veg fyrir bíl sem hinn maðurinn ók norðvestur Breiðhellu. Bílarnir rákust á hvorn annan á gatnamótunum.

Mennirnir tveir undirrituðu tjónstilkynningu sama dag og sendi annar þeirra tryggingafélagi tilkynningu í tölvupósti samdægurs.

Þeir eru með þessu sagðir hafa ætlað með blekkingum að fá tryggingafélagið til að bæta tjónið sem var samtals 1,2 milljónir króna.

Annar maðurinn er með skráð lögheimili í Reykjavík, en hinn á Ítalíu. Ekki hefur tekist að birta þeim síðarnefnda ákæruna og því er hún birt í Lögbirtingablaðinu. Hann er kvaddur til að koma fyrir dóm, hlýða á ákæru, halda uppi vörnum og sæta dómi.

„Sæki ákærði ekki þing má hann búast við því að fjarvist hans verði metin til jafns við það að hann viðurkenni að hafa framið brot það sem hann er ákærður fyrir og dómur verði lagður að honum fjarstöddum,“ segir í auglýsingunni í Lögbritingablaðinu. Svipuð auglýsing var birt í Lögbritingablaðinu í maí á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×