Viðskipti innlent

Gerður í Blush orð­laus yfir aug­lýsingum Play

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stór brjóst, karlmannskroppur þar sem gefið er í skyn að viðkomandi sé vel vaxinn niður og kynfæri á styttu eru áberandi í herferð Play fyrir veturinn.
Stór brjóst, karlmannskroppur þar sem gefið er í skyn að viðkomandi sé vel vaxinn niður og kynfæri á styttu eru áberandi í herferð Play fyrir veturinn. Play

Eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush segist orðlaus yfir auglýsingum flugfélagsins Play þar sem stór kvenmannsbrjóst og stinnur karlmannskroppur koma við sögu. Margir gagnrýna auglýsingarnar en aðrir segja fólki að anda með nefinu og kunna vel að meta.

„Langar svo mikið að halda með þeim. En er orðlaus,“ segir Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi Blush, í umræðu um auglýsingarnar í Facebook-hópnum Markaðsnördar.

Hún segir allt rangt við auglýsingarnar sem þó fái vissulega umfjöllun í íslenskum fjölmiðlum.

„En herferðin heilt yfir algjörlega taktlaus og neikvæð fyrir brandið. Fær mig á engan hátt til að hugsa að ég væri til í að fljúga með þessu félagi. Upplifi frekar, vantraust og ófagmannleg heit,“ segir Gerður sem hefur oftar en einu sinni verið verðlaunuð fyrir markaðssetningu. Hún spyr hvaða auglýsingastofa sé á bak við herferðina.

Davíð Lúther Sigurðsson, markaðsmaður, segist orðlaus eins og Gerður. Fjölmargir taka undir með þeim en sömuleiðis eru margir sem hafa gaman af. Viðbrögð úr öllum áttum má sjá á samfélagsmiðlum Play á Facebook, Instagram og TikTok.

Play slær öllu upp í grín með annarri auglýsingu þar sem sést kvenmannslíkami með stórum brjóstum áður en orðaleikur kynnir fimmtungsafslátt á flugi.

Siðferðislögga: „Þetta er kvenfyrirlitning.“

Samfélagsmiðlastjóri: „Umm, allt í lagi.“

Sitt sýnist hverjum en nýjustu auglýsingar Play, þar sem Einar Örn Ólafsson forstjóri kemur einnig við sögu, má sjá að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×