Innlent

Þrjár líkams­á­rásir á Ljósanótt

Jón Þór Stefánsson skrifar
Lögreglu var tilkynnt um þrjár líkamsárásir í nótt.
Lögreglu var tilkynnt um þrjár líkamsárásir í nótt. Vísir/Vilhelm

Lögreglu var tilkynnt var um þrjár líkamsárásir á Ljósanótt í gærkvöldi. Þá var einn tekinn fyrir ölvunarakstur og þá hafði lögregla afskipti af tveimur ungmennum sem voru ölvuð og undir aldri.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

„Lögreglan var með sýnilega löggæslu við hátíðarsvæðið á meðan formleg dagskrá var í gangi. Talsverður fjöldi fólks var á skemmtistöðum bæjarins og þónokkur ölvun í gangi fram eftir nóttu,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×