Sport

Ekið í veg fyrir rútu Eyja­kvenna

Sindri Sverrisson skrifar
Eyjakonur fögnuðu sigri í handboltanum en töpuðu í fótboltanum í dag. Á leiðinni heim úr borginni lenti rúta þeirra í árekstri.
Eyjakonur fögnuðu sigri í handboltanum en töpuðu í fótboltanum í dag. Á leiðinni heim úr borginni lenti rúta þeirra í árekstri. vísir/Diego

Leikmenn kvennaliða ÍBV í handbolta og fótbolta sluppu vel þegar rúta þeirra lenti í árekstri á leið heim úr Reykjavík í dag. Einn leikmaður var þó sendur á sjúkrahús til skoðunar.

„Þetta gerðist rétt fyrir utan borgarmörkin. Það keyrir bíll í veg fyrir rútuna og hálfpartinn í hliðina á henni að framan,“ segir Ellert Scheving, framkvæmdastjóri ÍBV, í samtali við Vísi.

„Það er ekki þægilegt að lenda í árekstri og auðvitað voru leikmenn svolítið hristir en ég held að þetta hefði ekki getað farið betur. Enginn alvarlega slasaður, hvorki hjá okkur né í bílnum,“ segir Ellert en bætti þó við að einn leikmaður hefði verið sendur í skoðun á Landspítalanum, vegna smávægilegs höfuðhöggs.

Eftir að hafa beðið í drykklanga stund héldu liðin með annarri rútu heim til Vestmannaeyja.

Handboltakonurnar héldu heim með tvö stig í farteskinu eftir sigur gegn Gróttu í fyrstu umferðinni í Olís-deildinni.

Fótboltakonurnar urðu hins vegar að sætta sig við 5-0 skell gegn HK í leik sem þó skipti litlu máli, í lokaumferð Lengjudeildarinnar. Þar enduðu Eyjakonur í 6. sæti og þurfa því að gera aðra tilraun á næsta ári til að komast aftur í Bestu deildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×