Innlent

Farið lent en fararnir urðu eftir

Kristín Ólafsdóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa
Starliner eftir lendingu í gærkvöldi. 
Starliner eftir lendingu í gærkvöldi.  AP

Mannlaust Starliner-geimfar flugvélarisans Boeing lenti seint í gærkvöldi í Bandaríkjunum. Geimferðin er sú fyrsta sem Boeing leggur í og reyndist ákaflega misheppnuð. Geimfararnir tveir, sem dvalið hafa í flauginni í rúma þrjá mánuði eru ekki á leið til jarðar í bráð. 

Myndavélar Alþjóðageimstöðvarinnar og flugvélar NASA mynduðu geimfarið þar sem það sveif niður til lendingar í Nýju-Mexíkó í myrkrinu. 

Geimfararnir Butch Wilmore og Suni Williams flugu út með geimfarinu og áttu að koma til baka með flauginni eftir átta daga ferð í júní en ekkert varð úr því vegna ítrekaðra bilana. Þróun geimfarsins hefur einkennst af vandræðum og töfum. Leki kom til að mynda á geimfarið þegar það var sent til geimstöðvarinnar í júní. 

Loks var ákveðið að senda flaugina heim mannlausa, þar sem ekki var talið öruggt að fljúga geimförunum heim í henni. Þeir munu dvelja í geimstöðinni á sporbaug um jörðu þar til á næsta ári. 

Wilmore og Williams héldu af stað í geimförina þann 5. júní, fyrir 94 dögum.AP

Notast verður við ­Dragon geimfar frá SpaceX til að flytja Wilmore og Williams, auk tveggja annarra geimfara til jarðar. Geimfarið fer stað í lok þessa mánaðar og vonast er til þess að geimfararnir lendi á jörðu í febrúar á næsta ári, átta mánuðum eftir áætlaða heimkomu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×