Sport

Dag­skráin í dag: NFL-veisla, Ronaldo og Danir

Sindri Sverrisson skrifar
Cristiano Ronaldo hefur enn gaman af því að skora mörk, þó þau séu orðin 900 talsins.
Cristiano Ronaldo hefur enn gaman af því að skora mörk, þó þau séu orðin 900 talsins. Getty/Hugo Amaral

Það er nóg um að vera á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag og þar ber hæst Þjóðadeild UEFA í fótbolta og bandarísku NFL-deildina.

Cristiano Ronaldo er nýbúinn að skora sitt 900. mark á ferlinum og ætlar að halda áfram að bæta við þegar hann mætir Skotum í Þjóðadeildinni í kvöld.

Annar athyglisverður leikur í Þjóðadeildinni er á milli Danmerkur og Serbíu, en Danir hófu Þjóðadeildina á flottum 2-0 sigri gegn Sviss á fimmtudaginn.

NFL-deildin kemst svo á fulla ferð í dag þar sem hægt verður að fylgjast með beinum útsendingum frá hörkuleikjum, og NFL Red Zone á Stöð 2 Sport 3.

Stöð 2 Sport 2

16:55 Dolphins – Jaguars, NFL

20:20 Browns – Cowboys, NFL

Stöð 2 Sport 3

17:00 NFL Red Zone

Vodafone Sport

12:50 Lúxemborg – Hvíta-Rússland, Þjóðadeild

15:50 Danmörk – Serbía, Þjóðadeild

18:35 Portúgal – Skotland, Þjóðadeild




Fleiri fréttir

Sjá meira


×