Lífið

Barnastjarna úr Aðþrengdum eigin­konum ó­létt

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Madison de la Garza með söngkonunni Demi Lovato á tónleikum þeirrar síðarnefndu árið 2011. Þær eru hálfsystur.
Madison de la Garza með söngkonunni Demi Lovato á tónleikum þeirrar síðarnefndu árið 2011. Þær eru hálfsystur. Getty

Madison de la Garza, leikkona sem gerði garðinn frægan sem Juanita Solis í sjónvarpsþáttunum Aðþrengdum eiginkonum, á von á sínu fyrsta barni. 

Hinn 22 ára Madison greindi frá fréttunum á Instagram-síðu sinni í vikunni.

Þar birti hún myndir af sér með sínum nákomnu, þar á meðal manni sínum Ryan Mitchell og hálfsysturinni Demi Lovato, tónlistarkonu sem rétt eins og Madison var fræg barnastjarna.

„Ó Ryan, það sem ég elska þig. Takk fyrir að láta alla mína drauma rætast,“ skrifar hún í færslunni. Þar stendur líka „Baby Mitchell 10.24“ svo hún er greinilega langt gengin með barnið.

„Ég elska þig og þetta barn svo mikið nú þegar!!“ skrifar Lovato við færsluna.

Þurfti að þola hatursfull ummæli vegna útlits síns

Juanita Solis var dóttir Gabriellu Solis (sem Eva Longoria lék) í Aðþrengdum eiginkonum og var eftirlæti margra áhorfenda. 

Tími Madison í þáttunum var þó enginn dans á rósum því hún þurfti að þola mikið netníð vegna útlits síns og þyngdar. Madison opnaði sig um hatursfull ummælin í viðtali við Independent í fyrra.

„Þau sögðust vilja mig feiga vegna þess hvernig ég leit út,“ sagði De la Garza um netníðið og sagðist hún hafa þróað með sér átröskun vegna þess. 

„Ljóta feita belja“ og „Ég vona að þú fáir krabbamein og deyir af því þú ert svo feit“ voru meðal ummæla sem hún sagðist hafa lesið þegar hún var bara sex og sjö ára og höfðu hræðileg áhrif á sjálfsímynd hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×