Fótbolti

Af­mælis­barnið Gylfi Þór fær kannski köku­sneið

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Afmælisbarnið Gylfi Þór Sigurðsson lék sinn 81. A-landsleik þegar Ísland lagði Svartfjallaland.
Afmælisbarnið Gylfi Þór Sigurðsson lék sinn 81. A-landsleik þegar Ísland lagði Svartfjallaland. Vísir/Hulda Margrét

Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson fagnar 35 ára afmæli sínu í dag. Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, segir Gylfa Þór mögulega fá kökusneið í tilefni dagsins en ekki mikið meira en það þar sem það er leikur annað kvöld.

Ísland mætir Tyrklandi ytra í Þjóðadeild karla í knattspyrnu á morgun, mánudag. Leikurinn verður sýndur í opinni dagskrá Stöðvar 2 Sport.

Gylfi var í byrjunarliði Íslands sem lagði Svartfjallaland 2-0 í 1. umferð Þjóðadeildarinnar. Lagði hann upp síðara mark leiksins með góðri hornspyrnu sem rataði á kollinn á Jóni Degi Þorsteinssyni.

Gylfi Þór spilaði þó ekki allan leikinn á Laugardalsvelli og fór af velli í síðari hálfleik. Hann gekk strax til búningsherbergja en á blaðamannafundi í dag staðfesti Åge Hareide, þjálfari Íslands, að afmælisbarnið hefði verið að glíma við einhverskonar matareitrun í leiknum á föstudag.

Í kjölfarið var Jóhann Berg spurður hvort Gylfi Þór næði eitthvað að fagna afmælinu meðan hann væri í miðju landsliðsverkefni. Fyrirliðinn sagðist nú ekki reikna með því en ef til vill fengi afmælisbarnið kökusneið með kvöldmatnum í kvöld.

Blaðamannafund Íslands í heild sinni má sjá í spilaranum hér að neðan.

Klippa: Blaðamannafundur landsliðsins fyrir leikinn gegn Tyrklandi

Leikur Tyrklands og Íslands hefst klukkan 18.45 annað kvöld og er í opinni dagskrá Stöðvar 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 18.15.


Tengdar fréttir

Gylfi Sig og Alexandra tilkynna kynið

Knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson og verslunareigandinn Alexandra Helga Ívarsdóttir eiga von á strák. Þau greindu fyrst frá óléttunni í maí og Alexandra greindi frá því að hún væri með „strákabumbu“ á Instragram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×