Veður

Kalt, blautt og hvasst

Atli Ísleifsson skrifar
Viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir daginn í dag og á morgun.
Viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir daginn í dag og á morgun. Veðurstofan

Veðurstofan gerir ráð fyrir strekkings norðanátt með rigningu á Norður- og Austurlandi í dag og slyddu eða snjókomu til fjalla. Sunnan heiða verður hins vegar yfirleitt bjart.

Á vef Veðurstofunnar segir að það verði kalt í veðri og muni bæta í vind og úrkomu í dag. Er útlit fyrir að færð geti spillst á fjallvegum fyrir norðan í kvöld og nótt.

Viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir daginn í dag og á morgun. Gular viðvaranir hafa tekið gildi á norðanverðu landinu vegna norðanáttarinnar og slyddu en þær breytast svo í appelsínugular í kvöld, en austantil á morgun.

„Norðanáttin fer ekki að ganga niður fyrr en annað kvöld hér vestanlands, en það lægir ekki almennilega fyrir austan fyrr en á föstudag. Hins vegar mun draga mikið úr úrkomunni á Norður- og Austurlandi annað kvöld, en hún verður í formi élja eða skúra norðaustanlands á miðvikudag,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag: Norðan og norðvestan 10-18 m/s, en snarpir vindstrengir við fjöll sunnantil. Talsverð rigning eða slydda norðan- og austanlands, en annars skýjað með köflum. Dregur úr vindi vestanlands og úrkomu á Norðvesturlandi um kvöldið. Hiti 4 til 11 stig, hlýjast sunnanlands.

Á miðvikudag: Norðan 8-18 m/s, hvassast austast, en hægari norðvestanlands. Skúrir eða él norðaustantil, en annars víða léttskýjað. Hiti 4 til 11 stig, svalast norðaustantil. Víða næturfrost inn til landsins.

Á fimmtudag: Norðvestan 13-20 m/s og skúrir eða él norðaustantil og hvassast á annesjum þar, en annars mun hægari og víða bjart veður. Hiti 3 til 11 stig að deginum, hlýjast syðst.

Á föstudag: Vaxandi austanátt, bjart framan af en þykknar smám saman upp. Minnkandi norðvestanátt norðaustantil og stöku él eða skúrir. Hiti breytist lítið.

Á laugardag: Norðaustlæg átt, dálítil rigning sunnan- og austanlands, en annars þurrt. Áfram kalt í veðri, einkum fyrir norðan.

Á sunnudag: Lægir og léttir víða til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×