Tónlist

Sáu ekki fyrir sér vin­sældirnar en fagna nú 36 árum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sigga og Grétar í Stjórninni hlakka mikið til komandi stórtónleika!
Sigga og Grétar í Stjórninni hlakka mikið til komandi stórtónleika! Vísir/RAX

„Við leggjum aðal áherslu á stuðið,“ segja Grétar Örvarsson og Sigga Beinteins sem saman mynda sögulegu sveitina Stjórnina. Stjórnin fagnar 36 árum í bransanum með tvennum stórtónleikum í lok september en blaðamaður tók púlsinn á tvíeykinu og fékk að heyra frá undirbúningnum.

Stjórnin gaf út lagið Í augunum þínum í sumar. Hér má hlusta á lagið: 

„Lagið var algjörlega hugmynd Grétars og ég kom ekkert að laginu nema að syngja það,“ segir Sigga og Grétar bætir við:

„Ég hafði verið að máta saman nokkur Stjórnarlög og reyna að finna út hver þeirra gætu gengið saman, hvað varðar tempó og texta, til að gera nýtt „mashup“. Síðan tóku við tveir mánuðir í að útsetja og fá þetta til að virka.

Viðtökurnar hafa verið frábærar og laginu vel tekið af Stjórnaraðdáendum. Lagið hefur fengið mjög góða spilun á öllum helstu útvarpsstöðum landsins.“

Sigga og Grétar eru þaulvön því að koma fram saman.Vísir/RAX

Áherslan á Stjórnarstuðið

Það er að mörgu að huga fyrir tónleika sem þessa en það er alltaf stutt í gleðina hjá Stjórninni.

„Við leggjum aðal áherslu á stuðið. Að koma á Stjórnartónleika er eins og að fara í gott partý. Við skreytum anddyrið og spilum þar tónlistina sem Stjórnin spilaði á Hótel Íslandi og í Leikhúskjallaranum. 

Tónleikarnir eru samfelld keyrsla frá fyrsta lagi með miklu ljósashow-i. Herra Hnetusmjör verður með okkur á föstudagskvöldinu og Emmsjé Gauti á laugardagskvöldinu,“ segir Grétar og Sigga bætir við:

„Tónleikarnir verða settir upp á svipaðan hátt og á afmælistónleikunum í fyrra, við tökum okkar bestu lög og það verður lagt mikið upp úr því að hafa flott Stjórnarstuð.“

Skipulagið hófst í mars og segir Grétar að lagalistinn sé nú tilbúinn.

„Hann byggir á helstu smellum hljómsveitarinnar, allt frá fyrsta laginu okkar, „Við eigum samleið“, sem var vinningslag „Landslagsins“, söngvakeppni Bylgjunnar og Stöðvar 2 árið 1989, til nýjasta lagsins okkar „Í augunum þínum“.“

Finna ekki lengur fyrir stressi

Bæði eru þau þaulvön að koma fram en blaðamaður spyr þó hvort þau finni einhvern tíma fyrir stressi áður en þau stíga á svið?

„Kannski ekki beint stressi, tilfinningin er meiri blanda af spennu og tilhlökkun,“ segir Grétar og Sigga tekur undir.

„Nei, maður finnur kannski mikið fyrir stressi lengur, alla vega ekki á Stjórnartónleikum. Við erum svo vön að spila saman og þekkjum lögin svo vel þannig að maður hefur bara gaman.“

Heitt bað og góður kaffibolli

Hvíldin er þeim kærkomin rétt fyrir tónleika.

„Mér finnst mjög mikilvægt að ná hálfrar klukkustundar ró seinnipart tónleikadags og einnig að fá gott næði í búningsherberginu í klukkustund áður en tónleikarnir hefjast. Loks skelli ég í mig einum góðum kaffibolla og stekk upp á svið,“ segir Grétar.

„Það er held ég engin sérstök rútína hjá mér. Ég reyni bara að sofa vel nóttina fyrir tónleika og reyni að fara í langt og gott bað, það er svona eiginlega það sem ég geri fyrir tónleika,“ segir Sigga. 

4. sætið eftirminnilegast

Þau þurfa ekki að hugsa sig tvisvar um þegar þau eru spurð hvað standi upp úr frá ferlinum.

„Í mínum huga er það Eurovision-keppnin í Zagreb árið 1990 þegar við fluttum „Eitt lag enn“ og urðum í 4. sæti. Það markaði tímamót fyrir hljómsveitina og skaut henni upp á stjörnuhimininn,“ segir Grétar.

„Já, ég held að Eurovision þátttakan standi alltaf upp úr,“ segir Sigga.

Sá ekki fyrir vinsældirnar

Aðspurð að lokum hvort þau eigi sér sitt uppáhalds Stjórnarlag segir Grétar:

„Láttu þér líða vel er mitt uppáhaldslag. Þegar ég samdi það sá ég ekki fyrir vinsældir þess, en nánast allir kunna það utan að og syngja með þegar við flytjum það.“

Sigga bætir þá við:

„Það eru alveg nokkur lög sem ég held upp á, Hamingjumyndir og Utan úr geimnum eru alltaf í uppáhaldi, en svo eru fullt af öðrum lögum með Stjórninni sem gaman er að syngja.“

Hér má nálgast nánari upplýsingar um Stjórnartónleikana. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×