Lífið

„Ég get ekki verið hamingju­samari“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Páll Óskar er yfirsig ástfanginn.
Páll Óskar er yfirsig ástfanginn.

„Mér finnst eins og allt sem ég hef skrifað eða gert áður en ég hitti hann sé skrifað af einhverjum manni sem er að leita að einhverju eða syrgja eitthvað,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson í þætti Auðuns Blöndal, Tónlistarmennirnir okkar á Stöð 2 í gærkvöldi.

Þar er Palli að ræða um eiginmann sinn sem hann giftist í mars á þessu ári. Maðurinn heitir Edgar Angarita.

„Allt sem ég er að skrifa núna er skrifað að manni sem er búinn að finna eitthvað. Hann hefur alveg massíf áhrif á lífið mitt, sálartetrið mitt, vinnuna mína og bara allt. Ég get ekki verið hamingjusamari.“

Hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×