Viðskipti innlent

Hlutur Skeljar stækkar eftir á­reiðan­leika­könnun

Árni Sæberg skrifar
Heiður Björk Friðjónsdóttir, framkvæmdarstjóri fjármála- og rekstrarsviðs Samkaupa, Gunnar Egill Sigurðsson forstjóri, Hallur Geir Heiðarsson framkvæmdarstjóri innkaupa- og vörustýringarsviðs og Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdarstjóri verslunar- og mannauðssviðs.
Heiður Björk Friðjónsdóttir, framkvæmdarstjóri fjármála- og rekstrarsviðs Samkaupa, Gunnar Egill Sigurðsson forstjóri, Hallur Geir Heiðarsson framkvæmdarstjóri innkaupa- og vörustýringarsviðs og Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdarstjóri verslunar- og mannauðssviðs. Samkaup

Áreiðanleikakönnunum í tengslum við samruna Samkaupa og tiltekinna félaga í samstæðu Skeljar fjárfestingafélags er lokið. Nú er áætlað að hlutur Skeljar í sameiginlegu félagi verði 47 prósent en áður var áætlað að hann yrði 42,7 prósent.

Þann 15. maí síðastliðinn undirrituðu Skel og Samkaup viljayfirlýsingu vegna samruna Samkaupa og Orkunnar IS ehf., Löðurs ehf., Heimkaupa ehf. og Lyfjavals ehf.

Þá var ætlaður hlutur Skeljar í sameinuðu félagi 42,7 prósent en tekið var fram að skiptihlutföll yrðu leiðrétt út frá stöðu handbærs fjár, vaxtaberandi skulda og nettó stöðu veltufjármuna miðað við viðmiðunardag.

Hér má sjá þau fyrirtæki sem munu heyra undir sameinað félag.Skel

Samkaup enn með rúmlega helming

Samkvæmt tilkynnningu Skeljar til Kauphallar segir að frá undirritun viljayfirlýsingar hafi ráðgjafar samrunaaðila unnið að fjárhagslegri, skattalegri og lögfræðilegri áreiðanleikakönnunum á Samkaupum og samrunafélögunum. 

Niðurstöður áreiðanleikakannanna liggi fyrir og undirritaður hafi verið viðauki við viljayfirlýsingu aðila frá 15. maí. Viljayfirlýsing aðila sé efnislega óbreytt að öðru leyti en að nú er gert ráð fyrir því að skiptihlutföll í samrunanum verði þannig að hluthafar Samkaupa fái í sinn hlut 52,5 prósent í hinu sameinaða félagi og hluthafar Heimkaupa 47,5 prósent. Áætlaður hlutur Skeljar í hinu sameinaða félagi verði 47 prósent en fyrir eigi Skel fimm prósent hlut í Samkaupum í gegnum Eignarhaldsfélagið Bjarma ehf.

Greiða úr útistandandi málum á næstu dögum

Aðilar vinni nú að því að ná saman um útistandandi efnisleg atriði í samrunasamningi en stefnt sé að því að greiða úr þeim á næstu dögum. Skel muni greina frekar frá framvindu samningaviðræðna eftir því sem tilefni er til.


Tengdar fréttir

Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði

Töluvert rými er fyrir samkeppni á matvörumarkaði, að mati sérfræðings hjá verðlagseftirliti ASÍ. Framkvæmdastjóri nýrrar lágvöruverðsverslunar segir markmiðið að hrista upp í fákeppnismarkaði.

SKEL eignast um þriðjungs­hlut í tansanísku námu­fé­lagi

Fjárfestingafélagið SKEL hefur keypt um þriðjungshlut í tansaníska fyrirtækinu Baridi, stofnað af Íslendingi, sem heldur utan um fjölmörg rannsóknarleyfi þar í landi til námuvinnslu á ýmsum verðmætum málmum. Til að fjármagna áformaða námuvinnslu félagsins er til skoðunar að sækja frekara hlutafé frá fjárfestum hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×