Innlent

Sláandi myndir frá Grinda­vík, ó­veður og úr­ræða­góðar flug­freyjur

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Kolbeinn Tumi Daðason fréttastjóri Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar les fréttirnar í kvöld sem eru í opinni í dagskrá.
Kolbeinn Tumi Daðason fréttastjóri Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar les fréttirnar í kvöld sem eru í opinni í dagskrá. Stöð 2

Sprungan sem liggur í gegnum Hópið í Grindavík nær niður á grunnvatn, allt að þrettán metra niður í jörðina. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sláumst við í för með bæjarfulltrúum sem kynntu sér aðstæður í skemmdum byggingum í Grindavík í dag og sjáum sláandi myndir frá bænum.

Jarðhitaleit á Reykjanesi hefur borið árangur umfram væntingar og þrjár rannsóknarborholur eru sagðar nýtanlegar. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mætir í myndver og fer yfir málið í beinni.

Verkalýðshreyfingin hefur boðað til mótmæla við þingsetningu á morgun. Verkalýðsforkólfar skynja mikla reiði vegna langvarandi verðbólgu og háum vöxtum og krefjast þess að stjórnvöld setji heimilin í landinu í forgang. Við ræðum við þingmenn í beinni.

Appelsínugular viðvaranir hafa tekið gildi á Norðurlandi og varað er við miklu hvassviðri og snjókomu þar til klukkan níu í fyrramálið. Bændur flýttu göngum til að koma fé af fjöllum og við tökum stöðuna á því í beinni.

Þá sjáum við tré ársins auk þess sem heyrum í fyrrverandi flugfreyjum sem segjast hafa haft sín ráð til að takast á við „dónakarla“. Í Sportpakkanum heyrum við í Viðari Erni Kjartanssyni sem hefur verið í lykilhlutverki hjá KA og í Íslandi í dag kynnum við okkur Prís sem er að hrista upp í matvörumarkaðnum.

Þetta og margt fleira í opinni dagskrá á Vísi, Bylgjunni og Stöð 2 klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×