Fótbolti

Ein­kunnir Ís­lands: Andri og Gylfi fá fall­ein­kunn

Íþróttadeild Vísis skrifar
Andri Lucas átti erfitt uppdráttar.
Andri Lucas átti erfitt uppdráttar. Ahmad Mora/Getty Images

Ísland tapaði 3-1 fyrir Tyrkjum ytra í Þjóðadeild karla í fótbolta í kvöld. Leikmenn liðsins hafa átt betri dag. Einkunnir strákanna má sjá að neðan.

Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður [6]

Öruggur í flestum aðgerðum sínum en fær á sig þrjú mörk. Vel hægt að setja spurningamerki við staðsetningar hans í fyrstu tveimur mörkum Tyrklands.

Guðlaugur Victor Pálsson, hægri bakvörður [6]

Skoraði mark Íslands. Gekk ekkert frábærlega varnarlega, staðsetningar ekki til fyrirmyndar í upphafi og svo alltof langt frá sínum manni í öðru marki heimamanna. Einkunnin væri lægri ef ekki væri fyrir markið.

Hjörtur Hermannsson, miðvörður [5]

Átti á köflum í veseni, rétt eins og aðrir varnarmenn Íslands. Hefði mögulega mátt setja meiri pressu í öðru marki Tyrklands og í brasi í þriðja markinu.

Daníel Leó Grétarsson, miðvörður [5]

Hefði mátt vera fljótari að bregðast við í fyrra marki Tyrklands. Klaufalegt brot undir lok fyrri hálfleiks. Vandræði á köflum, líkt og hjá öðrum varnarmönnum Íslands.

Kolbeinn Birgir Finnsson, vinstri bakvörður [5]

Átti oft í vandræðum þar sem Tyrkir keyrðu mikið á hann. Hefði mátt nýta fyrirgjafastöður betur. Sást að hann hefur ekki spilað mikið sem bakvörður í fjögurra manna varnarlínu.

Stefán Teitur Þórðarsson, miðjumaður [6] - Maður leiksins

Erfiður leikur gegn öflugri miðju Tyrklands en Stefán Teitur skilaði sínu. Gerði oft vel að hefja spil og losa sig undan pressu. Búinn að bóka sæti sitt í byrjunarliðinu virðist vera.

Jóhann Berg Guðmundsson, miðjumaður [5]

Hefur oft verið betri og fann sig illa. Missti boltann í markinu og seinn til baka. Lagði upp mark Guðlaugs. Stoðsending hækkaði einkunn hans.

Gylfi Þór Sigurðsson, miðjumaður [3]

Afmælisbarn gærdagsins sást ekki mikið. Virkaði heldur týndur þar sem Ísland var lítið með boltann. Tekinn af velli eftir klukkustund.

Mikael Neville Anderson, hægri kantmaður [5]

Kraftur í honum og hefði ef til vill mátt fá fleiri aukaspyrnur frá dómara leiksins. Fékk litla þjónustu líkt og aðrir sóknarþenkjandi leikmenn Íslands. Fór af velli í hálfleik.

Jón Dagur Þorsteinsson, vinstri kantmaður [5]

Erum vön því að sjá Jón Dag láta finna fyrir sér, keyra á menn þegar tækifæri gefst og almennt vera einn besta mann liðsins. Ekki var mikið af slíkum tækifærum og hann tekinn af velli eftir klukkustund.

Andri Lucas Guðjohnsen, framherji [3]

Hljóp mikið þegar Ísland varðist. Slakur sóknarlega. Ekki mikil nærvera og gekk illa að halda í bolta og finna liðsfélaga. Lét varnarmenn Tyrkja ýta sér full auðveldlega af boltanum, ítrekað.

Varamenn

Willum Þór Willumsson [5] kom inn á fyrir Mikael Anderson á 46. mínútu.

Hafði ekki mikil áhrif á leikinn eftir að hann kom inn á. Komst í lítinn takt.

Valgeir Lunddal Friðriksson [5] kom inn á fyrir Guðlaug Victor Pálsson á 59. mínútu.

Töluvert meiri sóknarógn af honum heldur enn Guðlaugi.

Orri Steinn Óskarsson [5] kom inn á fyrir Gylfa Þór Sigurðsson á 59. mínútu.

Tengdi betur við liðsfélaga sína heldur en Andri Lucas og Gylfi Þór. Komst almennt ekkert í mikinn takt við leikinn frekar en aðrir varamenn Íslands. Vantaði stundum að skila sér á enda fyrirgjafa.

Arnór Ingvi Traustason [5] kom inn á fyrir Jón Dag Þorsteinsson á 59. mínútu.

Hann og Orri náðu að tengja sendingar við liðsfélaga sína, sem ekki sást mikið af áður en þeirra krafta naut við. Sama og með aðra varamenn. Missti svo boltann í aðdraganda þriðja marksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×