Körfubolti

Valin best þriðju vikuna í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Caitlin Clark og félagar í Indiana Fever hafa ástæðu til að brosa þessa dagana enda gengur mjög vel hjá liðinu eftir afar erfiða byrjun.
Caitlin Clark og félagar í Indiana Fever hafa ástæðu til að brosa þessa dagana enda gengur mjög vel hjá liðinu eftir afar erfiða byrjun. Getty/Dylan Buell/

Nýliðinn Caitlin Clark heldur áfram að blómstra í WNBA deildinni í körfubolta og hún er ekki aðeins besti nýliðinn í deildinni heldur hefur hún nú verið valin besti leikmaður Austurdeildarinnar þrjár vikur í röð.

Clark var líka með engar smá tölur í síðustu viku þar sem hún skoraði 25,0 stig, tók 7,7 fráköst og gaf 10,0 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Hún náði þrennu í einum þessara leikja sinna í vikunni. Það var í annað skiptið á leiktíðinni sem hún nær því en engum öðrum nýliða í sögu deildarinnar hefur tekist það.

Clark og félagar hennar í Indiana Fever hafa þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni og með hana innan borðs er liðið búið að vinna fleiri leiki í vetur (19) en samanlagt tvö tímabil þar á undan (18).

Besti leikmaður Vesturdeildarinnar var Napheesa Collier hjá Minnesota Lynx en hún var með 22,5 stig, 11,0 fráköst og 1,5 varið skot að meðaltali í leik.

Það styttist í úrslitakeppnina þar sem verður fróðlegt að sjá hversu langt Fever konur komast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×