Innlent

Hrókera í nefndum Al­þingis

Atli Ísleifsson skrifar
Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokki, Jóhann Friðrik Friðriksson Framsóknarflokki og Njáll Trausti Friðbertsson Sjálfstæðisflokki munu mun fara með nefndarformennsku á þinginu.
Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokki, Jóhann Friðrik Friðriksson Framsóknarflokki og Njáll Trausti Friðbertsson Sjálfstæðisflokki munu mun fara með nefndarformennsku á þinginu. Vísir

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, mun taka við formennsku í fjárlaganefnd þingsins og mun Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, taka við formennsku í utanríkismálanefnd. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, verður nýr formaður efnahags og viðskiptanefndar.

Þetta herma heimildir fréttastofu en þingflokkar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokks hafa ákveðið að gera breytingar á nefndaskipan í kjölfar þess að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, tók við embætti fjármála- og efnahagsráðherra í vor. Hefð er fyrir því að formaður fjárlaganefndar og fjármálaráðherra séu ekki í sama flokki.

Samkomulag er nú innan þingflokka stjórnarflokkanna um formennsku í fastanefndum þingsins þó að formenn nefnda séu ekki valdir að forminu til fyrr en á fyrsta fundi hverrar nefndar eftir þingsetningu.

Njáll Trausti var varaformaður fjárlaganefndar á síðasta ári en mun nú taka við formennsku í nefndinni. Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, gegndi formennsku í nefndinni á síðasta þingvetri og verður varaformaður nefndarinnar.

Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, verður annar varaformaður atvinnuveganefndar.Vísir/Vilhelm

Hættir í efnahags- og viðskiptanefnd

Greint var frá því á þingfundi í gær að Sjálfstæðismaðurinn Teitur Björn Einarsson væri hættur í efnahags- og viðskiptanefnd þar sem hann gegndi formennsku síðasta þingvetur. Hann tekur sæti í atvinnuveganefnd og verður þar annar varaformaður. Diljá Mist Einarsdóttir Sjálfstæðisflokki mun þar taka við formennsku í efnahags- og viðskiptanefnd samkvæmt heimildum fréttastofu.

Dilja Mist gegndi formennsku í utanríkismálanefnd síðasta vetur, en Jóhann Friðrik Friðriksson Framsóknarflokki kemur nýr inn í nefndina og mun samkvæmt heimildum fréttastofu taka við formennsku. Bjarni Jónsson Vinstri grænum verður varaformaður nefndarinnar.

Samkvæmt heimildum fréttastofu mun Bryndís Haraldsdóttir Sjálfstæðisflokki áfram gegna formennsku í allsherjar- og menntamálanefnd. Þá mun Þórarinn Ingi Pétursson áfram gegna formennsku í atvinnuveganefnd, Bjarni Jónsson Vinstri grænum formennsku í umhverfis- og samgöngunefnd og Steinunn Þóra Árnadóttir Vinstri grænum verður áfram formaður í velferðarnefnd.

Tilkynnti um mannabreytingar

Forseti Alþingis greindi síðdegis í gær frá þeim mannabreytingum sem yrðu í fastanefndum þingsins. Kom þar fram að hjá Framsóknarflokki tæki Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir sæti sem aðalmaður í fjárlaganefnd í stað Jóhanns Friðriks Friðrikssonar og Ingibjörg Isaksen yrði varamaður í sömu nefnd í stað Lilju Rannveigar Sigurgeirsdóttur. Þá myndi Jóhann Friðrik Friðriksson taka sæti sem aðalmaður í utanríkismálanefnd í stað Hafdísar Hrannar Hafsteinsdóttur.

Í þingflokki Sjálfstæðisflokks tæki Birgir Þórarinsson sæti sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd í stað Teits Björns Einarssonar. Þá myndu Teitur Björn og Jón Gunnarsson taka sæti sem aðalmenn í atvinnuveganefnd í stað Birgis Þórarinssonar og Ásmundar Friðrikssonar.


Tengdar fréttir

Hvatti þingmenn til málamiðlana og samninga

Forseti Íslands segir skipta miklu að stjórnmálaflokkar geti þrátt fyrir ólík sjónarmið og kapp um hylli kjósenda gefið eftir og náð sameiginlegri lendingu í þágu þjóðarinnar. Lýðræðið krefðist málamiðlana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×