Enski boltinn

Enzo missir bíl­prófið og fær sekt upp á hálfa milljón

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Enzo var gerður að fyrirliða Chelsea í sumar.
Enzo var gerður að fyrirliða Chelsea í sumar. Visionhaus/Getty Images

Enzo Fernández, fyrirliði Chelsea á Englandi og landsliðsmaður Argentínu, má ekki keyra næstu sex mánuðina þar sem hann hefur verið sviptur ökuréttindum sínum. Þá þarf hann að borga sekt upp á 3020 pund eða rúmlega hálfa milljón íslenskra króna.

Fernandez vildi ekki gefa upp hver gerði Porsche Cayenne-bifreið sína þann 27. desember síðastliðinn en það var annað umferðarlagabrot bifreiðar í hans eigu á Englandi eftir að ganga til liðs við Chelsea frá Benfica í janúar 2023.

Í hvorugu atvikinu var ekki hægt að sýna fram á að Enzo hafi verið að keyra en þar sem bifreiðin var í hans eigu var honum refsað. 

Í frétt Sky Sports segir að dæmt hafi verið í málinu á miðvikudag. Missir leikmaðurinn ökuréttindi í hálft ár, fær tólf refsipunkta vegna brotanna og þarf að borga sekt upp á rúmlega hálfa milljón króna.

Fernández er í dag fyrirliði Chelsea en hann var hluti af heimsmeistaraliði Argentínu í árslok 2022. Ekki löngu síðar keypti Chelsea hann frá Benfica á 106,8 milljónir punda eða  rúmlega 19 milljarða, það var á þeim tímapunkti breskt met.

Segja má að portúgalska félagið hafi ávaxtað vel en það hafði aðeins fest kaup á miðjumanninum hálfu ári áður á 8,8 milljónir punda eða einn og hálfan milljarð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×