Fótbolti

Ás­laug Dóra skoraði í öruggum bikar­sigri

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Áslaug Dóra í leik með Örebro.
Áslaug Dóra í leik með Örebro. Örebro

Örebro er komið áfram í sænsku bikarkeppni kvenna í knattspyrnu eftir öruggan 4-1 útisigur á Mallbacken. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir var á skotskónum fyrir Örebro.

Hin norska Nora Håheim kom Örebro yfir snemma leiks og hin finnska Viivi Ollonqvist bætti við tveimur mörkum fyrir lok fyrri hálfleiks.

Heimaliðið minnkaði muninn í síðari hálfleik áður en Áslaug Dóra gerði út um leikinn, lokatölur 1-4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×