Viðskipti innlent

Ráðinn fjár­festa­tengill Icelandair

Atli Ísleifsson skrifar
Kristófer Númi Hlynsson.
Kristófer Númi Hlynsson. Icelandair

Kristófer Númi Hlynsson hefur verið ráðinn sem fjárfestatengill Icelandair.

Í tilkynningu segir að Kristófer Númi komi frá Nasdaq á Íslandi þar sem hann hafi starfað frá árinu 2020 við ráðgjöf og þjónustu við útgefendur verðbréfa og fjármálastofnanir. Áður hafi Kristófer starfað í fjögur ár hjá fjárfestingabankanum JP Morgan í Bretlandi.

„Kristófer tekur við hlutverkinu af Írisi Huldu Þórisdóttur sem hefur sinnt því undanfarin ár ásamt því að veita rekstrarstýringu (Business Control) forstöðu. Íris Hulda heldur áfram sem forstöðumaður rekstrarstýringar en hlutverk sviðsins hefur nýlega verið endurskilgreint. Breytingarnar eru hluti af þeirri vegferð félagsins að efla rekstrarstýringu enn frekar ásamt því að styrkja fjárfestatengsl.

Kristófer er með MSc gráðu í alþjóðlegum fjárfestingum og fjármálum frá Bournemouth University, ásamt BA gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×