Innlent

Helgi í Góu og fyrr­verandi borguðu brúsann

Árni Sæberg skrifar
Mikið var um dýrðir í kosningavöku Ásdísar, sem Helgi hefur sennilega fjármagnað.
Mikið var um dýrðir í kosningavöku Ásdísar, sem Helgi hefur sennilega fjármagnað. Vísir

Fyrirtæki í eigu Helga Vilhjálmssonar, Helga í Góu, styrktu forsetaframboð Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur, um fjögur hundruð þúsund krónur. Framboðið kostaði um 774 þúsund krónur.

Þetta kemur fram í uppgjöri framboðsins, sem skilað var til Ríkisendurskoðunar á mánudag. Þar segir að framlög lögaðila hafi numið 425 þúsund krónum, framlög einstaklinga, 270.700 krónum og aðrar tekjur 77.885 krónum, alls 773.585 krónum.

Kostnaður hafi numið sömu tölu. Kosningaskrifstofa hafi kostað 107.299 krónur, aulýsinga- og kynningarkostnaður hafi numið 617.940 krónum, funda- og ferðakostnaður 46.256 krónum og annar kostnaður 2.090 krónum.

KFC og Góa gáfu 400 þúsund 

Í skýringum segir að KFC ehf. og Góa-Linda sælgætisgerð ehf. hafi lagt framboðinu til 200 þúsund krónur hvort. Bæði félög eru í eigu áðurnefnds Helga í Góu.

Félagið Leiktæki og garðyrkja ehf. hafi svo lagt framboðinu til 25 þúsund krónur. Félagið er í eigu Jóhanns Wium Tómassonar, sem er fyrrverandi kærasti Ásdísar Ránar.

Karolina fund skilaði ekki svo miklu

Loks segir að 37 einstaklingar hafi lagt framboðinu til samtals 270.700 krónur. Ekki þarf að gefa upp nöfn þeirra sem leggja til minna en 300 þúsund krónur. 

Þá skýrist aðrar tekjur upp á 77.850 krónur af fjáröflun á fjáröflunarvefsíðunni Karolina fund.

Nú hafa uppgjör allra framboða í forsetakosningunum í sumar verið birt, að framboði Baldurs Þórhallssonar frátöldu.


Tengdar fréttir

Ásdís Rán búin að safna undirskriftum

Ásdís Rán Gunnarsdóttir, einnig þekkt sem Ísdrottningin, hefur safnað tilskildum fjölda undirskrifta til þess að geta formlega boðið sig fram til forseta.

Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn

Ásdís Rán Gunnarsdóttir forsetaframbjóðandi og athafnakona hyggst bjóða öðrum frambjóðendum og fjölskyldum þeirra til galakvölds næstkomandi laugardagskvöld. Ásdís segir tilganginn vera að hrista saman hópinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×