Íslenski boltinn

Ungar systur spiluðu saman í efstu deild

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigurborg Katla og Þórdís Embla Sveinbjörnsdætur sjást hér saman eftir leikinn í gær.
Sigurborg Katla og Þórdís Embla Sveinbjörnsdætur sjást hér saman eftir leikinn í gær. @vikingurfc

Systurnar Sigurborg Katla og Þórdís Embla Sveinbjörnsdætur spiluðu saman í fyrsta sinn í efstu deild í 3-0 sigri Vikinga á FH í Bestu deildinni í gær.

Sigurborg Katla stóð í marki Víkings eins og oftast í sumar en yngri systir hennar, Þórdís Embla, kom inn á sem varamaður undir lok leiksins.

Þetta var fyrsti leikur Þórdísar í efstu deild. Hún hafði verið ónotaður varamaður í fimm leikjum en kom nú inn á völlinn í fyrsta sinn.

Þær systur náðu því að spila saman í efstu deild áður en sú eldri, Katla, hélt upp á nítján ára afmælið sitt.

Katla er átján ára síðan í janúar en Þórdís Embla heldur upp á sautján ára afmælið sitt í nóvember.

Þórdís Embla var á láni hjá Fram í fyrrasumar og lék þá fimm leiki í Lengjudeildinni.

Katla er aðalmarkvörður Víkings annað sumarið í röð en í fyrra hjálpaði hún liðinu að vinna bæði Lengjudeildina og bikarmeistaratitilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×