Íslenski boltinn

Arnar ætlar ekki að fylgja sínum mönnum í Vestur­bæinn

Aron Guðmundsson skrifar
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, tekur út leikbann í leik gegn KR í Bestu deildinni í kvöld.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, tekur út leikbann í leik gegn KR í Bestu deildinni í kvöld. Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Arnar Gunn­laugs­son ætlar ekki að hreiðra um sig í stúkunni á Meistara­völlum í dag þegar að KR tekur á móti Víkingi Reykja­vík í þýðingar­miklum leik fyrir bæði lið í Bestu deildinni. Arnar tekur út leik­bann í dag og mætir því Óskari Hrafni, þjálfara KR, ekki á hliðar­línunni. Þeir kollegarnir hafa marga hildina háð í gegnum tíðina og Arnar er farinn að sjá hand­bragð Óskars á KR-liðinu.

„Gríðar­lega mikil­vægur leikur,“ segir Arnar aðspurður um hversu mikið mikilvægi leikur dagsins er fyrir Víkinga sem geta með sigri í kvöld jafnað Breiðablik að stigum á toppi Bestu deildarinnar fyrir lokaumferð hinnar hefðbundnu deildarkeppni. 

„Það skiptir miklu máli að enda í efsta sæti áður en að deildinni er skipt upp. Upp á heima­leikja­rétt og annað. Svo er þetta einn af iconic völlum á Ís­landi. KR-völlurinn. Þrátt fyrir að hann sé kominn til ára sinna. Þessi völlur hefur reynst mér vel. Bæði sem leik­maður og enn betur sem þjálfari. Ég held að öllum Víkingum hlakki gríðar­lega til leiksins í kvöld.“

Hvar ætlarðu að horfa á leikinn?

„Ég held að ég verði bara í Víkinni. Horfi á leikinn þar. Eins og ég sagði áður þá er KR-völlurinn goð­sagna­kenndur en að­eins kominn til ára sinna. Það er ekki alveg nægi­lega góð að­staða þarna fyrir mig til þess að mæta á svæðið og horfa á leikinn innan um stuðnings­menn. Þó svo að það sé gaman. Ég verð bara í tjillinu í Víkinni.“

Það er ekki mögu­leiki á því að ef að leikur dagsins verður of spennandi fyrir þig að þú brunir í Vestur­bæinn á Meistara­velli?

„Jú það gæti nú alveg verið,“ svarar Arnar hlæjandi. „Ég held bara að það sé svo ó­trú­lega mikill hugur í stuðnings­mönnum beggja liða. Það blása ferskir vindar um KR-svæðið núna. Óskar Hrafn tekinn við þjálfun liðsins. Hann er einn af okkar allra bestu þjálfurum. Hann er mættur í upp­eldis­fé­lagið og er þar með að láta sinn draum rætast. Það er stemning í báðum fé­lögum þrátt fyrir að staðan í deildinni hjá þeim sé ekki sú sama.“

Miklu rólegri upp í stúku

Ertu ekki alveg ó­mögu­legur upp í stúku?

„Nei það er eigin­lega þver­öfug upp­lifun. Ég verð miklu meira stressaður á hliðar­línunni. Að því að það sem að maður heldur að sé alveg í volli á hliðar­línunni lítur bara þokka­lega út þegar að maður er með yfir­sýn yfir völlinn. Svo er Sölvi bara með svo góða nær­veru á hliðar­línunni fyrir okkur. Ég treysti honum og restinni af teyminu full­kom­lega til þess að stjórna liðinu. Við erum vel drillað lið með góðan strúktur. Svona til að svara spurningunni þá líður mér eigin­lega bara betur upp í stúku. Ég verð kannski bara þar í fram­haldinu. Fyrir utan völlinn.“

Handbragð Óskars farið að sjást á KR

Þið Óskar Hrafn hafið nú tekist á í gegnum tíðina. Er ekkert leiðin­legt fyrir þig að missa af tæki­færinu að mæta honum svona í fyrsta skipti sem hann þjálfar KR liðið á móti Víkingum?

„Ég held að það sé leiðin­legra fyrir ykkur fjöl­miðla­mennina sem og stuðnings­menn. Þið hefðuð kannski búist við ein­hverri flug­elda­sýningu en við Óskar Hrafn ræddum málin vel í sumar. Það var aldrei neitt illt á milli okkar, þannig séð, fyrir utan völlinn. Stressið var bara svo mikið þegar að okkar lið mættust. Staða Víkings og Breiða­bliks á þessum tíma gerði það að verkum að það þurfti lítið til að allt færi í bál og brand. Auð­vitað vill maður vera á hliðar­línunni. Sama hver þjálfari and­stæðingsins er. En kannski sér­stak­lega í kvöld á móti Óskari. Það kemur kannski seinna.“

Arnar er farinn að sjá hand­bragð Óskars Hrafns á KR-liðinu.

„Blikaliðið undir hans stjórn var eitt skemmti­legasta fót­bolta­lið ís­lenskrar knatt­spyrnu­sögu. Það er ekkert flóknara en það. Það er á­kveðið hand­bragð hans byrjað að mótast á KR-liðinu. En auð­vitað þar kannski að taka smærri skref svona fyrst um sinn. Þú getur ekki gleypt heiminn í einum bita. En það er á­kveðið hand­bragð sem maður sér alveg strax. Það er af hinu góða.“

Enginn að fara liggja til baka

Liðin hafa fengið góða pásu milli leikja sökum landsleikjahlés sem Arnar segir hafa gert Víkingum gott því mikið hefur verið að gera hjá liðinu. Bæði hér heima sem og í Evrópu þar sem að Víkingar hafa tryggt sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu.

„Það var dá­lítið kær­komið. Þetta er erfitt. Ekki bara líkam­lega heldur einnig and­lega. Að stimpla sig inn og út úr Evrópu með ferða­lögum og til­heyrandi raski. Fríið var því kær­komið. Reyndar fóru þrír eða fjórir leik­menn í lands­liðs­verk­efni frá okkur, stóðu sig mjög vel þar. En það eru ein­hverjir leik­menn í banni hjá okkur í leik dagsins. Við erum án ein­hverra sex til sjö lykil­leik­manna í kvöld en hópurinn er búinn að vera frá­bær í sumar. Hefur tekist vel á við öll á­föll. Við mætum því vel gíraðir og með sterkt lið í kvöld.“

KR og Víkingur hafa marga hildina háð í gegnum tíðina. Þrátt fyrir að liðin séu stödd við sitt hvoran enda töflunnar er leikja þessa liða alltaf beðið með spennu og eftirvæntingu.  Mikið er undir fyrir bæði lið í kvöld.

„Grasið gerir þetta að svo skemmti­legum leik. Þetta verða svo miklir bar­áttu­leikir og læti. Sér­stak­lega núna í lokin þegar að tíma­bilið er komið inn á síðasta hlutann og menn sjá fram á það hvar þeir geti endað. Það setur extra mikil­vægi á þetta. Við verðum bara að vinna í kvöld. Það er ekkert flóknara en það. KR er náttúru­lega, þannig séð, enn í fall­bar­áttu og eiga erfiðan leik gegn Val fyrir höndum á mánu­daginn kemur. Þeir mega ekkert heldur við að tapa stigum. DNA beggja þjálfara er nú þannig að það er enginn að fara liggja til baka og verja eitt­hvað stig. Ég held að þetta verði þræl­skemmti­legur leikur sem á­horf­endur munu hafa gaman að.“

Leikur KR og Víkings Reykjavíkur hefst klukkan 17:00 í dag og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×