Golf

Tiger í enn eina bak­að­gerðina

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Tiger Woods hefur átt erfitt uppdráttar í ár.
Tiger Woods hefur átt erfitt uppdráttar í ár. Vísir/EPA-EFE/JUSTIN LANE

Raðsigurvegarinn Tiger Woods hefur farið í enn eina bakaðgerðina til að losa um verkina sem hafa plagað hann á yfirstandandi tímabili.

Woods er einn sigursælasti kylfingur síðari ára en hefur glímt við gríðarlega erfið bakmeiðsli á ferli sínum. Svo slæm voru þau að hann ánetjaðist verkjalyfjum á sínum tíma til að lina þjáningar sínar.

Í yfirlýsingu á X, áður Twitter, segir kylfingurinn að hann hafi farið í aðgerð neðarlega á baki til að losa um verk á föstudagsmorgun. Skurðlæknirinn sem framkvæmdi aðgerðina segir hana hafa heppnast vel.

Hinn 48 ára Woods hefur ekki spilað síðan honum mistókst að komast í gegnum niðurskurðinn á Opna í júlí síðastliðnum. Hann hefur spilað takmarkað síðan hann lenti í skelfilegu bílslysi árið 2021.

„Aðgerðin gekk vel og ég vona að hún losi um verkinn sem ég hef fundið fyrir nær allt árið. Ég hlakka til að takast á við endurhæfinguna sem og að undirbúa mig undir daglegt líf, þar á meðal golf.“

Woods hefur tekið þátt á fjórum meistaramótum í ár. Hann komst ekki í gegnum niðurskurð á þremur þeirra en endaði í 60. sæti á Masters-mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×