Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég vakna flesta daga á milli klukkan sjö og átta, en þó með undantekningum. Reglulega fara ofhugsanir vegna vinnu alveg með mann, sem rífur mann fyrr á lappir.
Þegar að ég næ að sofa til rúmlega átta, upplifi ég ákveðna sigurtilfinningu.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Tíminn frá því að ég vakna og þar til ég fer á skrifstofuna er svolítið „me-time.“ Ég legg áherslu á að byrja daginn rólega, gef mér góðan tíma í að gera mér hrærð egg og hlusta á hljóðbók.
Fer yfir tölvupóstinn, oftast um 30-40 stykki, áður ef ég fer á skrifstofuna. Sem er oftast um klukkan hálf tíu til tíu því þannig losna ég við morgunumferðina. Reglulega æfi ég strax eftir morgunrútínuna og tek þá æfingu frá tíu til hálf tólf.“
Hvaða kvikmynd eða sjónvarpsþáttur hefur fengið þig til að gráta eða í það minnsta að verða meyr?
Eftir að maður varð miðaldra og testerónið fór að minnka en estrógenið að aukast, er auðveldara að tárast yfir næstum því engu.
Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því og það gerist hvort sem ég er að horfa á Bachelorette þátt eða harðsvíraða bíómynd.
Er að horfa á Ted Lasso þessa dagana, sem eru einu bestu þættir sem ég hef séð, bæði hugljúfir og fyndnir.
Ég man í fyrsta skipti sem ég varð meyr yfir kvikmynd. Það var þegar að ég horfði á kvikmyndina Forrest Gump, sem telst líklega enn uppáhalds kvikmyndin mín.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Ég sinni líklega 20-40 mismunandi verkefnum daglega, öll mjög fjölbreytt sem gerir starfið það skemmtilegasta í heimi.
Flest snúast um að hjálpa og ráðleggja fólki varðandi fasteignir, hvort sem það snertir kaup eða sölu. Eins fylgir daglegum rekstri ýmiss verkefni, allt frá markaðsmálum yfir í að aðstoða starfsfólkið. Ég er líka að vinna í mörgum spennandi verkefnum og nýjungum sem ég er að þróa fyrir fasteignamarkaðinn.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
Það má segja að ég sé ofur-skipulagður og í raun stjórnar dagbókin lífi mínu. „Task“ listinn er oft ansi langur en ég kemst varla á koddann á kvöldin nema að ég sé búinn að klára öll verkefnin á listanum.
Ég skipulegg tímann minn næstum því frá mínútu til mínútu á hverjum degi. Oftast enda ég vinnudaginn á því að skipuleggja verkefnin fyrir næsta dag; bóka fundi, lista upp tölvupósta og símtöl og svo framvegis.
Enda hef ég sagt, í gríni frekar en alvöru, að ég afkasti jafn mikið á einum degi með góðu skipulagi en ég gerði á einni viku með engu skipulagi.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Um hálfellefu til hálftólf steinrotast ég fyrir framan sjónvarpið. Rútínan er að horfa á einn til tvo þætti fyrir svefninn. Oftar en ekki sofna ég yfir seinni þættinum. Veit að þetta er ekki ráðlögð leið til að sinna hvíld og svefni en vinn í að laga það.“