Innlent

Raf­magns­laust í Laugar­dal í nótt

Lovísa Arnardóttir skrifar
Rafmagnslaust var í nokkra klukkutíma í nótt. 
Rafmagnslaust var í nokkra klukkutíma í nótt.  Mats Wibe Lund

Rafmagnslaust var í Laugardal og nágrenni í nótt á milli klukkan 02:41 og 04:59 vegna bilunar. Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að rafmagnsleysið hafi haft áhrif á póstnúmer 104, 105 og 108.

Klukkan fjögur var rafmagn komið á einhverjar götur og svo um 16 mínútum síðar var rafmagn komið á flestar götur nema í kringum Laugalæk. Klukkan 04:47 áttu svo allir að vera komnir aftur með rafmagn.

Í hverfishópnum Langholtshverfi ræddu íbúar rafmagnsleysið í nótt. Þar átti fólk í einhverjum vandræðum í fyrstu með að finna tilkynningu um rafmagnsleysið en fengu svo upplýsingar frá Veitum um að rafmagn væri farið af Laugardal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×