Fótbolti

Lamine Yamal með tvö mörk í sigri Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lamine Yamal fagnar öðru marka sinna fyrir Barcelona í dag.
Lamine Yamal fagnar öðru marka sinna fyrir Barcelona í dag. Getty/Jose Breton

Barcelona vann 4-1 sigur á nágrönnum sínum í Girona í Katalóníuslaginum.

Börsungar hafa þar með unnið fyrstu fimm deildarleiki sína og það með markatölunni 17-4.

Þetta var frábær dagur fyrir toppliðið en spútnikliðið frá því í fyrra er ekki alveg að ná að fylgja á eftir ævintýrinu á síðasta tímabili.

Ungstirnið Lamine Yamal skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum. Fyrst á 30. mínútu eftir að hafa unnið boltann af varnarmanni og svo sjö mínútum síðar eftir stoðsendingu frá Robert Lewandowski.

Dani Olmo skoraði síðan þriðja markið eftir stoðsendingu frá Jules Koundé á 47. mínútu og Barcelona nánast gekk frá leiknum í byrjun seinni hálfleiks.

Markið skoraði spænski landsliðsmaðurinn með frábæru skoti úr þröngu færi.

Dagurinn varð síðan enn betri þegar Pedri skoraði fjórða markið á 64. mínútu. Gestirnir náðu að minnka muninn í lokin.

Yamal er nú kominn með þrjú mörk og fjórar stoðsendingar í fimm fyrstu umferðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×