Viðskipti innlent

Steinar fjárfestir í Snjallgögnum

Árni Sæberg skrifar
Steinar hefur bæst í eigendahóp Snjallgagna.
Steinar hefur bæst í eigendahóp Snjallgagna. Snjallgögn

Steinar Björnsson hefur bæst við hluthafahóp sprotafyrirtækisins Snjallgagna. Aðrir bakhjarlar Snjallgagna í dag eru Bright Ventures og Gísli Kr., Founders Ventures, Icelandic Venture Studio, MGMT Ventures og Tennin. Snjallgögn er tíu manna hugbúnaðarhús með höfuðstöðvar í Reykjavík. Fyrirtækið þróar lausnir er gera vinnustöðum mögulegt að hagnýta gervigreind og gagnavísindi til að efla sölu og þjónustu ásamt því að bæta daglegan rekstur.

Í fréttatilkynningu segir að að Steinar hafi tekið þátt í byggja upp ferðaþjónustufyrirtækið Extreme Iceland frá árinu 2009, en það hafi síðan sameinast Arctic Adventures árið 2017. Hann hafi starfað áfram hjá Arctic Adventures til ársins 2023 þegar hann seldi sinn hlut í fyrirtækinu til Stoða. 

„Ég einblíndi á hugbúnaðarþróun, markaðssetningu og tæknimál. Kom einnig að því að setja upp skrifstofu fyrir félagið í Litháen, þar sem ég bjó svo í tæp tvö ár. Í dag starfa ég sem fjárfestir og ráðgjafi og hef sérstakan áhuga á nýsköpun og sprotafyrirtækjum,“ er haft eftir Steinari.

Verðmætur liðsauki

„Við hjá Snjallgögnum erum afskaplega upptekin af því að fjárfestar í fyrirtækinu komi með dýrmæta sérþekkingu að borðinu, sem nýtist okkur til að skapa sóknarfæri. Bakgrunnur Steinars er í ferðaþjónustu og í þeirri verðmætu atvinnugrein leynast margir af okkar stærstu viðskiptavinum. Dágóður hluti af lausnasafni Snjallgagna var einmitt upprunalega þróaður og smíðaður til að fást við þær milljónir fyrirspurna sem íslenskri ferðaþjónustu berst á ársgrundvelli. Steinar þekkir okkur því vel og hefur mikinn skilning á viðfangsefnum okkar. Hann er okkur verðmætur liðsauki,“ er haft eftir Stefáni Baxter, forstjóra Snjallgagna og einum stofnenda fyrirtækisins.

Háfleygur fjárfestir

„Ég er mjög spenntur fyrir því að koma inn í hluthafahópinn hjá Snjallgögnum. Félagið er með einstaklega spennandi vörur og mitt mat er að það geti verið leiðandi á gervigreindarsviðinu hér heima um ókomna tíð. Hugbúnaðurinn skalast vel og tækifæri til útrásar eru mikil. Hagnýting á gervigreind er rétt að byrja á Íslandi og atvinnulífið mun án efa njóta góðs af samstarfi við Snjallgögn. Ég ætla að leyfa mér að vera háfleygur og halda því fram að framleiðni á vinnustöðum sem hagnýta gervigreind muni vakna úr dvala og fara á flug til heilla fyrir land og þjóð!“ er enn fremur haft eftir Steinari.

Lykilvara Snjallgagna sé gervigreindarkerfið Context Suite, sem sé safn hugbúnaðarlausna og innihaldi meðal annars þjónustugreind, eftirspurnargreind og snjallmennið Mími.


Tengdar fréttir

Gísli Kr. bætist í eigendahóp Snjallgagna

Gísli Kr. og fjárfestingafélag hans, Bright Ventures, hafa bæst við eigendahóp sprotafyrirtækisins Snjallgagna. Aðrir bakhjarlar Snjallgagna í dag eru Tennin, MGMT Ventures, Founders Ventures og Icelandic Venture Studio.

Snýr aftur til Snjall­gagna

Óli Páll Geirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri gagnavísindateymis Snjallgagna og snýr jafnframt samhliða aftur í eigendateymið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×