Þar að auki leiddi hann hinar svokölluðu Radwan-sveitir Hezbollah, sem eru nokkurs konar sérsveitir samtakanna. Ísraelar segja að ásamt Aqil hafi að minnsta kosti tíu af æðstu meðlimum Radwan-sveitanna fallið.
Forsvarsmenn hersins halda því fram að mennirnir hafi verið á fundi um að mögulegar árásir á byggðir í Ísrael þegar nokkrum sprengjum var varpað á fjölbýlishús sem mennirnir eru sagðir hafa verið í.
Aqil var einnig eftirlýstur í Bandaríkjunum fyrir aðkomu hans að árás á sendiráð Bandaríkjanna í Beirút og mannskæðri sprengjuárás í bragga bandarískra landgönguliða í Beirút en báðar árásirnar voru gerðar árið 1983.
Sjá einnig: Felldu einn af leiðtogum Hezbollah
Daniel Hagari, talsmaður ísraelska hersins, segir að áðurnefndur fundur hafi farið fram undir fjölbýlishúsinu sem loftárásin var gerð á í dag. Ísraelski miðillinn Haaretz sagði frá því að Aqil hafi verið útskráður af sjúkrahúsi í morgun, eftir að hann særðist þegar símboðar Hezbollah sprungu í loft upp fyrr í vikunni.
Heilbrigðisráðuneyti Líbanon segir að minnsta kosti níu hafa fallið í árásinni og að nærri því sextíu séu særðir, samkvæmt AP fréttaveitunni.
Eftir árásina í morgun skutu meðlimir Hezbollah fjölmörgum eldflaugum að Ísrael.
Gífurlega spenna er nú á landamærum Ísraels og Líbanon, þar sem árásum á báða bóga hefur farið fjölgandi. Hezbollah hófu árásir með eldflaugum og drónum upprunalega þann 8. október og hafa Ísraelar gert fjölmargar loft- og stórskotaliðsárásir yfir landamærin.
Spennan náði svo nýjum hæðum á dögunum þegar þúsundir símboða í eigu vígamanna Hezbollah sprungu í loft upp. Ísraelar hófu svo í gær umfangsmiklar árásir í suðurhluta Líbanon.
Sjá einnig: Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár
Ráðamenn í Ísrael hafa talað um nýjan „áfanga“ í stríðinu og hefur verið deilt um það hvort herinn eigi að gera innrás í suðurhluta Líbanon.
Einn talsmanna Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, sagði í dag að enn væri verið að leita friðsamlegra lausna á deilunni. Blaðamður Axios hefur þó eftir ónafngreindum ísraelskum embættismanni að þar á bæ sé talið að ekki sé lengur hægt að finna friðsama lausn. Þess í stað hafi verið ákveðið að engin vetlingatök dugi lengur til og árásum á samtökin fjölgað.