Leiknum lauk með 2-2 jafntefli en Arsenal hékk á 2-1 forystu sinni alveg þar til að nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum og John Stones jafnaði metin fyrir Manchester City.
Skytturnar léku einum manni færri allan seinni hálfleikinn eftir að Belginn Leandro Trossard fékk að líta sitt fyrsta gula spjald með stuttu millibili eftir að hafa sparkað knettinum í burtu eftir að dómari leiksins, téður Michael Oliver, hafði flautað og dæmt aukaspyrnu í kjölfar tæklingar Trossard á Bernardo Silva sem hann fékk sitt seinna gula spjald fyrir.
Arteta var allt annað en sáttur með dómarateymi leiksins í viðtali eftir leik og benti á tvö atvik í leiknum sem vörðuðu leikmenn Manchester City sem hann taldi svipuð því atviki sem að Trossard fékk gult spjald fyrir þegar að hann sparkaði knettinum í burtu eftir flaut Oliver. Þar taldi stjóri Arsenal að gula spjaldið hefði þá einnig átt að fara á loft.
Roy Keane er ekki ánægður með þróunina hjá knattspyrnustjórum deildarinnar sem hann segir að kvarti of mikið.
„Knattspyrnustjórar eru að tjá sig í hverri einustu viku og taka fyrir allar ákvarðanir sem þeir telja að séu gegn sér,“ sagði Roy Keane í útsendingu Sky Sports í kringum leikinn. „Stígðu bara fram og sættu þig við þetta. Innst inni er hann sáttur við stigið. Sýndu bara smá klassa. Þú sem knattspyrnustjóri Arsenal.
Segðu frekar: „Hann átti ábyggilega skilið að fá rauða spjaldið, liðið brást vel við því að vera manni undir og svo höldum við áfram frá þessu.“ Taktu lyfin þín og haltu áfram.“