Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins 27. september 2024 09:30 Heilbrigðiskerfið er mannanna verk og því er ætlað að sinna þörfum allra í landinu fyrir heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðisstarfsfólk gerir sitt besta í krefjandi aðstæðum, oft í fjársveltum og undirmönnuðum stofnunum. Píratar vilja og ætla að leggja sitt af mörkum til þess að styðja miklu betur við notendur og veitendur heilbrigðisþjónustu og kerfið sem það vinnur í. Hagsmunir notenda og veitenda heilbrigðisþjónustu eru samtvinnaðir, þegar við eflum réttindi notenda og aðgengi þeirra að bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu þá erum við samtímis að efla og bæta starfsaðstæður og líðan heilbrigðisstarfsfólks. Af þessu tilefni mæltu Píratar fyrir tveimur þingsályktunartillögum í gær sem ætlað er að styðja við notendur kerfisins og veita betri þjónustu. Annars vegar leggjum við til að sérstakt embætti umboðsmanns sjúklinga verði stofnað og hins vegar að neyðargeðheilbrigðisteymi verði sett á laggirnar. Margir sjúklingar án talsmanns Þörfin fyrir umboðsmann sjúklinga er brýn. Við fáum reglulega fréttir af fólki sem heilbrigðiskerfið hefur brugðist. Fólk sem neyðist til að setja ómælda orku og jafnvel stórar fjárhæðir í að knýja fram réttlæti þegar það ætti að fá svigrúm til þess að nota orku sína í að græða sár, að hlúa að sjálfum sér á erfiðum tímum og til að ná heilsu. Tillaga Pírata felst í því að sett verði á fót sérstakt embætti umboðsmanns sjúklinga sem hafi það hlutverk að standa vörð um hagsmuni og réttindi sjúklinga, vera opinber talsmaður þeirra og sinna eftirliti með heilbrigðisþjónustu með tilliti til réttinda sjúklinga. Embættið á jafnframt að sinna leiðbeinandi fræðsluhlutverki Við Píratar teljum að stofnun umboðsmanns sjúklinga feli í sér mikið framfaraskref í þjónustu við sjúklinga og aðra notendur heilbrigðiskerfisins. Umsagnaraðilar málsins eru samhljóma um að vöntun sé á embættinu og flest telja að sjúklingar séu í eðli sínu viðkvæmur hópur, sérstaklega þegar um er að ræða sjúklinga sem eru börn eða glíma við fjölþættan vanda. Mannréttindaskrifstofa Íslands bendir sérstaklega á í umsögn sinni um málið að erfitt hafi reynst fyrir ákveðna hópa sjúklinga að fá aðgang að einstaklingsmiðaðri og þverfaglegri heilbrigðisþjónustu. Þeir hópar sem eru illa í stakk búnir til að berjast fyrir hagsmunum sínum og réttindum hafa engan talsmann sem talar sínu máli gagnvart heilbrigðiskerfinu. Neyðargeðheilbrigðisteymi fyrir fólk í vanda Pírötum er mjög hugleikið að heilbrigðiskerfið sé betur í stakk búið til þess að sinna fólki með geðrænan vanda. Við lögðum því til að ríkisstjórnin komi á fót neyðargeðheilbrigðisteymum um land allt. Teymunum yrði falið að sinna útköllum úr neyðarnúmerinu 112 í þeim tilvikum þar sem grunur leikur á að einstaklingur eða einstaklingar á vettvangi stríði við geðrænan vanda eða vímuefnavanda. Teymin yrðu skipuð heilbrigðisstarfsfólki með sérþekkingu á sviði geðheilbrigðis, vímuefnavanda og skaðaminnkunar. Við leggjum einnig til að starfsfólk Neyðarlínunnar, sem og lögregla, fái viðeigandi fræðslu til að meta í störfum sínum hvort þörf sé á aðstoð frá heilbrigðisstarfsfólki í útköllum. Reglulega berast fréttir af fólki í vanda og fyrir stuttu heyrðum við af manni sem undir áhrifum ofskynjunarsveppa gekk nakinn á Suðurlandsvegi. Í því tilfelli hefði verið gott að hafa sérfræðinga á vettvangi með viðeigandi kunnáttu. Frá því að tillagan var lögð fram hafa komið fram jákvæðar umsagnir frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félagsráðgjafafélagi Íslands, Öryrkjabandalagi Íslands, fulltrúum neyðarlínunnar og Hugarafli. Öll eru sammála um gagnsemi og mikilvægi þess að veita þjónustu sem þessa. Þá er reynsla annarra þjóða af neyðargeðheilbrigðisteymum mjög góð og hefur alla jafna minnkað valdbeitingu lögreglu gagnvart þessum viðkvæmu hópum verulega ásamt því að veita þeim betri og meira viðeigandi þjónustu. Auk þess draga neyðargeðheilbrigðisteymi úr álagi á lögreglu sem getur betur einbeitt sér að hefðbundnum lögreglustörfum. Píratar vita að til þess að bæta heilbrigðiskerfið þarf að hugsa í lausnum og vera tilbúinn að mæta notendum kerfisins af mennsku, með réttindi þeirra og velferð í fyrirrúmi. Þessar tillögur eru tvö púsl í stærri mynd sem Píratar eru að teikna af öruggara og betra heilbrigðiskerfi fyrir alla. Halldóra Mogensen er þingmaður Pírata og Eva Sjöfn Helgadóttir varaþingmaður Pírata. Þær eru fyrstu flutningsmenn þingsályktunartillagnanna tveggja. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Heilbrigðismál Geðheilbrigði Halldóra Mogensen Eva Sjöfn Helgadóttir Píratar Mest lesið Miðflokkurinn: fjarverandi í landi tækifæranna Lilja Hrund Lúðvíksdóttir Skoðun Riddarar kærleikans Halla Tómasdóttir Skoðun Það sem „gleymist“ að segja Sigmar Guðmundsson Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins Skoðun Þegar Joe Camel varð jafngóður vinur barnanna og Mikki mús Eyrún Magnúsdóttir Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Hvar er fótspor stjórnvalda gegn vinnumansali? Þorbjörrg Sigríður Gunnlaugsdóttir Skoðun Við stöndum saman með réttindum táknmálsins! Mordekaí Elí Esrason Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason Skoðun Skoðun Skoðun FO: Hvernig getur þú skipt sköpum fyrir konur í Súdan? Áslaug Eva Björnsdóttir skrifar Skoðun Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins skrifar Skoðun Miðflokkurinn: fjarverandi í landi tækifæranna Lilja Hrund Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Við stöndum saman með réttindum táknmálsins! Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Það sem „gleymist“ að segja Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er fótspor stjórnvalda gegn vinnumansali? Þorbjörrg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar Joe Camel varð jafngóður vinur barnanna og Mikki mús Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Riddarar kærleikans Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Skoðun Rannsökum og ræðum menntakerfið Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Horfið á möguleikana í samfélagslegri ábyrgð Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að kjarna orku þjóðar Ísak Einar Rúnarsson skrifar Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann skrifar Skoðun Útboð á Fjarðarheiðargöngum Hildur Þórisdóttir skrifar Skoðun Hvert á að fara með íslenskt þjóðfélag? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Svikin loforð gagnvart börnum? Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar
Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar