Gjaldeyriskaup lífeyrissjóða skreppa saman um fjórðung
![Stöðugleiki hafi einkennt gjaldeyrismarkaðinn það sem af er ári og Seðlabankinn ekki beitt inngripum síðan í febrúar.](https://www.visir.is/i/48CE6BE599D38CFC499C55D4729503EF7DB24378272E561F94BDA01FB5CB3499_713x0.jpg)
Talsvert hefur hægt á kaupum lífeyrissjóðanna á erlendum gjaldeyri á undanförnum mánuðum samhliða meðal annars því að fjármagnsinnflæði í íslensk hlutabréf og ríkisskuldabréf var nánast hverfandi. Eftir að hafa veikst nokkuð í ágústmánuði, einkum þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum, hefur gengi krónunnar styrkst undanfarið og er að nálgast að nýju gildið 150 á móti evrunni.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/91CB9983116FD0C9F37D4402AF187D3FCDCE66B4BFA82F03E622C08905C24F02_308x200.jpg)
Áhyggjuefni ef „við sitjum föst eftir“ meðan stóru seðlabankarnir lækka vexti
Haldist verðbólga þrálát á sama tíma og vaxtalækkunarferli helstu seðlabanka heimsins er að byrja, einkum í Bandaríkjunum, er það „áhyggjuefni“ ef Ísland mun þá sitja eftir sem gæti ýtt undir frekari hækkun á raungenginu og dregið úr samkeppnishæfni, að sögn seðlabankastjóra. Hann viðurkennir að viðvarandi háar langtímaverðbólguvæntingar séu til marks um vantrú á öllu kerfinu – peningastefnunni, ríkisfjármálunum og aðilum vinnumarkaðarins – að það muni takast að ná niður verðbólgunni, en það sé samt engin afsökun fyrir Seðlabankann að hafa ekki náð þar meiri árangri.
![](https://www.visir.is/i/A636717FBEE6A68FA089610A7A89496757526D44848E500CA49E42BE52FE7FEA_308x200.jpg)
Dvínandi áhugi erlendra sjóða á íslenskum ríkisbréfum þrátt fyrir háa vexti
Þrátt fyrir tiltölulega háan vaxtamun við útlönd hefur fjármagnsinnflæði vegna kaupa erlendra fjárfesta á ríkisskuldabréfum stöðvast á undanförnum mánuðum eftir að hafa numið tugum milljarða króna á liðnum vetri. Gengi krónunnar hefur að sama skapi farið nokkuð lækkandi og ekki verið lægri gagnvart evrunni frá því undir árslok 2023.