Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Rakel Sveinsdóttir skrifar 28. september 2024 10:03 Guðrún Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri KOKKU, viðurkennir að hafa stundum dottið í að horfa á hallærislegt sjónvarpsefni og nefnir þar sérstaklega Biggest Looser og bandarískar sápuóperur. Sem hún segir reyndar tilvalið sjónvarpsefni þegar verið er að strauja. Vísir/Vilhelm Guðrún Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri KOKKU, vaknar alltaf á undan klukkunni en segist bæta það upp með síðdegislúrum á sunnudögum. Á meðan kaffivélin malar kaffið á morgnana, keppist Guðrún við spænskuna í Duolingo.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég fer á fætur um klukkan sjö. Klukkan er stillt á 10 mínútur yfir en ég er eiginlega alltaf vöknuð á undan klukkunni. Væri alveg til í að sofa lengur, en ég vakna eiginlega alltaf á sama tíma, líka um helgar. Bæti það svo bara upp með síðdegisblundi á sunnudögum. Mæli með að sofna yfir bók á frídögum.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Skvetti framan í mig köldu vatni og geri svo kaldpressaðan djús með rauðrófum, engifer og turmerik. Svo mala ég kaffi í mokkakönnuna og þykist rifja upp spænskuna á meðan ég bíð eftir kaffinu. Ég lít samt meira á Duolingo sem keppni, því ég ruslast í gegn um eins margar æfingar og ég get til að fá stig. Er ekki viss um að það sitji mikið eftir.“ Hefur þú einhvern tíma, nú eða í fortíðinni, dottið niður í sjónvarpsgláp á frekar hallærislegu efni, jafnvel sápuóperu? Ha ha já, ég og yngsta dóttir mín höfðum þann sið að horfa alltaf á Biggest Looser á föstudagskvöldum og úða í okkur bragðaref á meðan. Svo átti ég það til að horfa á bandarískar sápuóperur þegar ég var Au Pair í New York á sínum tíma. Tilvalið sjónvarpsefni á meðan maður straujar.“ Guðrún segist ekki eiga auðvelt með að skipuleggja sig og það sé oft frekar erfitt fyrir fólk í þjónustustarfi þar sem viðskiptavinurinn ræður mikið ferðinni. Um þessar mundir er hún að vinna að 20 ára afmæli vefverslun KOKKU, en 20 ár þykir frekar hár aldur fyrir íslenska netverslun.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Við erum á fullu að undirbúa 20 ára afmæli vefverslunar Kokku. Trúi því varla að það sé svona langt um liðið síðan hún fór í loftið, en það var þann 1. Október 2004. Þetta er hár aldur fyrir íslenska vefverslun og það verður haldið upp á það með pompi, prakt og tilboðum.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? Ég hef alltaf átt erfitt með að skipuleggja mig, ég byrja vinnudaginn á að rifja upp hvað ég náði ekki að klára í gær og hefst svo handa. Mæti flesta daga nógu snemma til að koma einhverri skrifstofuvinnu í verk áður en búðin opnar. Það er erfitt að einbeita sér að sliku þegar maður er í þjónustustarfi því mikilvægasta verkefnið er alltaf viðskiptavinurinn sem stendur fyrir framan þig.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Yfirleitt of seint, við erum aldrei komin heim úr vinnu fyrr en eftir hálf sjö svo við borðum kvöldmat frekar seint. Ég fer líka í pilates tvisvar í viku og er þá ekki komin heim fyrr en um átta leytið. Svo er gott að geta aðeins slakað af á sófanum eftir mat. Ég reyni að vera komin undir sæng með bók um hálf tólff, en tekst það ekki alltaf.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir „Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“ Páll Pálsson fasteignasali á Heima er best, segir að eftir að testerónið fór að minnka og estrógenið að aukast geti hann tárast yfir nánast öllu sem hann horfir á. Páll leggur áherslu á „me time“ á morgnana. 14. september 2024 10:01 Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Hödd Vilhjálmsdóttir, almannatengill og lögfræðingur hjá Kvis, segist vera kómísk blanda af einstaklingi sem fæddist 107 ára en er ung í anda. Hödd segir kaffivélina mjög elskað heimilistæki og nýtir morgnana í að læra ítölsku með Duolingo. 21. september 2024 10:01 Eiginkonan kvartar undan fíflagangi á morgnana Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill og texta- og hugmyndasmiður hjá auglýsingastofunni TVIST, segir tvær mennskar vekjaraklukkur sjá til þess að hann fari snemma fram úr á morgnana; Önnur er fjögurra ára og hin eins og hálfs árs. 31. ágúst 2024 10:00 Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, viðurkennir að langa ekkert endilega fram úr strax og hún vaknar á morgnana. Öll Abbalögin og Meat Loaf koma henni alltaf í dansgírinn og vinælt á hlaupalagalistanum eru Bubbi Morthens og Grýlurnar. 7. september 2024 10:02 „Hef ítrekað verið ásakaður af eiginkonunni að vera morgunfúll“ Friðrik Björnsson, fjármálastjóri AÞ-Þrifa, á það til að elda heilu kvöldmáltíðirnar þegar fjölskyldan er sofnuð en Friðrik er einn þeirra sem snúsar snúsin þegar vekjaraklukkan hringir á morgnana. 22. júní 2024 10:00 Mest lesið „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Viðskipti innlent Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Viðskipti innlent Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ „Breytingaskeið kvenna hefur líka áhrif á karlavinnustaði“ „Það segir sig sjálft að við höfum endalausa orku“ Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Fótboltastelpan um starfsframann: „Að sækja sér tækifærin sjálfur“ „Fyrir mann sem er skrifblindur og lesblindur er þetta ekkert auðvelt“ „Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“ Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum Tvöfalt líf Ara: „Í fyrra túraði ég í sex vikur“ Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Sjá meira
„Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“ Páll Pálsson fasteignasali á Heima er best, segir að eftir að testerónið fór að minnka og estrógenið að aukast geti hann tárast yfir nánast öllu sem hann horfir á. Páll leggur áherslu á „me time“ á morgnana. 14. september 2024 10:01
Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Hödd Vilhjálmsdóttir, almannatengill og lögfræðingur hjá Kvis, segist vera kómísk blanda af einstaklingi sem fæddist 107 ára en er ung í anda. Hödd segir kaffivélina mjög elskað heimilistæki og nýtir morgnana í að læra ítölsku með Duolingo. 21. september 2024 10:01
Eiginkonan kvartar undan fíflagangi á morgnana Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill og texta- og hugmyndasmiður hjá auglýsingastofunni TVIST, segir tvær mennskar vekjaraklukkur sjá til þess að hann fari snemma fram úr á morgnana; Önnur er fjögurra ára og hin eins og hálfs árs. 31. ágúst 2024 10:00
Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, viðurkennir að langa ekkert endilega fram úr strax og hún vaknar á morgnana. Öll Abbalögin og Meat Loaf koma henni alltaf í dansgírinn og vinælt á hlaupalagalistanum eru Bubbi Morthens og Grýlurnar. 7. september 2024 10:02
„Hef ítrekað verið ásakaður af eiginkonunni að vera morgunfúll“ Friðrik Björnsson, fjármálastjóri AÞ-Þrifa, á það til að elda heilu kvöldmáltíðirnar þegar fjölskyldan er sofnuð en Friðrik er einn þeirra sem snúsar snúsin þegar vekjaraklukkan hringir á morgnana. 22. júní 2024 10:00