Lífið

Halda styrktartónleika fyrir fjöl­skyldu Kol­finnu Eld­eyjar

Lovísa Arnardóttir skrifar
Kolfinna Eldey
Kolfinna Eldey Aðsend

Stór hópur listamanna á Akureyri heldur styrktartónleika fyrir aðstandendur Kolfinnu Eldeyjar Sigurðardóttur. Tónleikarnir eru haldnir næsta miðvikudag, 2. október, klukkan 20. Hildur Eir Bolladóttir verður kynnir á tónleikunum.

Kolfinna Eldey fannst látin sunnudagskvöldið 15. september. Faðir hennar er grunaður um að hafa orðið henni að bana. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 15. september eftir að hann hringdi í lögreglu og tilkynnti að hann hefði ráðið dóttur sinni bana. Hann var handtekinn við Krýsuvíkurveg og lík dóttur hans fannst skammt frá.

„Kammerkórinn Hymnodia vill styðja við góðan félaga í kórnum og fjölskyldu hans eftir erfiðan missi ungrar stúlku, Kolfinnu Eldeyjar. Fjöldi vina kórsins úr hópi norðlensks tónlistarfólks slæst í för með Hymnodiu á styrktartónleikum sem haldnir verða í Akureyrarkirkju,“ segir í tilkynningu um tónleikana.

Aðgangur verður ókeypis en tekið verður á móti frjálsum framlögum í reiðufé og með innleggi á söfnunarreikning.

Á tónleikunum koma fram, Anna Skagfjörð, Elvý G. Hreinsdóttir, Eyþór Ingi Jónsson, Hammond, Guðrún Arngrímsdóttir, Hallgrímur Jónas Ómarsson, Haukur Pálmason, Hildur Eir Bolladóttir, Ívar Helgason, Jón Þorsteinn Reynisson, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Karlakvartettinn Ferun, kór Akureyrarkirkju, Kristjana Arngrímsdóttir, Maja Eir Kristinsdóttir, Óskar Pétursson, hljómsveitin Poppveislan, Rakel Hinriksdóttir, Rúnar Eff, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, Stefán Elí, Stefán Gunnarsson, Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, Sumarliði Helgason, Trausti Ingólfsson, Valgarður Óli Ómarsson, Valmar Väljaots, Þorvaldur Örn Davíðsson, Þórhildur Örvarsdóttir og Rakel Hinriksdóttir. Í lokin munu allir flytjendur sameinast í lokalagi.

Söfnun fer fram á reikning: Kennitala er 170483-4569 og bankaupplýsingar: 0192-26- 21239


Tengdar fréttir

Faðirinn ekki lengur í einangrun

Sigurður Fannar Þórsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald til þriðjudagsins 21. október í Héraðsdómi Reykjaness í dag að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti ungrar stúlku. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×