Heima­menn kláruðu dæmið í fyrri hálf­leik

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Evanilson er loksins kominn á blað en hann kostaði sitt þegar hann kom frá Porto.
Evanilson er loksins kominn á blað en hann kostaði sitt þegar hann kom frá Porto. Mike Hewitt/Getty Images

Bournemouth vann Southampton í hálfgerðum nágrannaslag í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Heimamenn gerðu út um leikinn með þremur mörkum í fyrri hálfleik.

Evanilson, sem kostaði Bournemouth, metfé er loks kominn á blað en hann kom heimaliðinu yfir á 17. mínútu. Dango Ouattara bætti við öðru marki liðsins á 32. mínútu og Antoine Semenyo því þriðja aðeins sjö mínútum síðar. Lewis Cook með stoðsendinguna í marki tvö og þrjú.

Staðan var 3-0 í hálfleik og gerðu gestirnir þrefalda skiptingu í hálfleik til að reyna koma sér inn í leikinn. Það tókst þegar Taylor Harwood-Bellis minnkaði muninn snemma í síðari hálfleik en að reyndist eina mark hálfleiksins.

Lokatölur á Vitality-vellinum 3-1 og Bournemouth komið upp í 11. sæti með 8 stig á meðan Southampton er í 19. sæti með aðeins eitt stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira