Blikkaði í rafmagnslausum Vaðlaheiðargöngum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 2. október 2024 16:24 Frá Vaðlaheiðargöngum á Norðurlandi. Vísir/Vilhelm Áhrif rafmagnsleysisins á helmingi landsins í dag gætti eðli málsins samkvæmt víða. Meðal annars í Vaðlaheiðargöngum þar sem ljós blikkuðu svo eftir var tekið. Rafmagn komst aftur á um tvöleytið í dag en RARIK hvetur þau sem orðið hafa fyrir tjóni eða enn eru í vandræðum til þess að hafa samband.
Eins og fram hefur komið varð rafmagnslaust klukkan 12:25 allt frá Vesturlandi um Norðurland og austur á firði í kjölfar útleysingar hjá Norðuráli. Í svörum frá fyrirtækinu kom fram að útslátturinn hafi verið við reglubundið viðhald. Fimmtán þúsund heimili urðu rafmagnslaus Samkvæmt upplýsingum frá RARIK ættu allir að vera komnir með rafmagn að nýju. Rafmagn var komið á í öllu dreifikerfi RARIK rétt eftir klukkan 14 í dag. Segir í tilkynningu að gert sé ráð fyrir að rúmlega fimmtán þúsund heimili og fyrirtæki á dreifisvæði RARIK hafi orðið fyrir rafmagnsleysi eða verulegum rafmagnstruflunum í eina til tvær klukkustundir. Í tilkynningunni segir ennfremur að mikið högg hafi komið á allt kerfið og vegna þess að ekki leysti út á Mývatni er ljóst að þar hefur orðið nokkurt tjón á búnaði. Viðskiptavinir RARIK sem urðu fyrir tjóni af völdum rafmagnstruflana eru hvattir til að senda inn tilkynningu í gegnum vef RARIK á www.rarik.is/tjon. Viðskiptavinir RARIK sem enn finna fyrir rafmagnsleysi eru hvattir til að kanna hvort að lekaliði hafi leyst út hjá sér og ef það er ekki orsökin að hafa samband við RARIK í síma 528 9000.
Orkumál Vaðlaheiðargöng Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir Nemendur Vallaskóla í þremur fyrstu sætunum í Stóru upplestrarkeppninni Ætla að bæta þjónustu en störfum fækki í einhverjum tilvikum Nýtt gervigreindaræði vekur upp spurningar um höfundarétt Taka fyrir afnám réttinda grásleppusjómanna Fyrstu hundrað dagar ríkisstjórnarinnar og gervigreindaræði Efling ungmennastarfs í Breiðholti meðal aðgerða „Allt að því hroki eða yfirlæti“ að tala um reynsluleysi „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Skipar stýrihóp um áfengis- og vímuefnameðferð „Ég vil að þú sért alltaf með farða, annars sjást bólurnar þínar“ Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Björn hvergi af baki dottinn Sjór gekk yfir fjárhús í Vík og allt á floti Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Hveitibrauðsdögunum lokið: Ríkisstjórnin pólitískt stórtækari en von var á Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Segir ÍR að slökkva á skiltinu Ríkisstjórnin hefur starfað í hundrað daga og fjármálaáætlun kynnt Bein útsending: Gera upp fyrstu hundrað daga ríkisstjórnarinnar Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Hallarekstur stöðvaður á næstu tveimur árum Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Bein útsending: Ráðherra kynnir fjármálaáætlun Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Trúverðugleiki forsætisráðherra sé í húfi Grindvíkingar segjast vera Excel skjöl í ráðuneytum í Reykjavík Grænlandsheimsókn varaforseta og þrumuveður Sjá meira