Íslenski boltinn

Lokaumferðin rosa­lega 1991: Fjögur lið gátu orðið meistarar og mættust inn­byrðis

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslandsmeistarar Breiðabliks 1991.
Íslandsmeistarar Breiðabliks 1991. íslensk knattspyrna

Sem kunnugt er mætast Valur og Breiðablik í dag í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil kvenna í fótbolta. Þótt þessi lið hafi ekki áður mæst í úrslitaleik sem þessum voru þau bæði í baráttunni um titilinn í eftirminnilegri lokaumferð 1991. Fyrir hana gátu fjögur lið orðið meistarar og þau mættust öll innbyrðis.

Baráttan um Íslandsmeistaratitil kvenna hefur sjaldan verið jafn spennandi og 1991. Átta lið voru í efstu deild það tímabil og skáru fjögur þeirra sig úr: ÍA, KR, Valur og Breiðablik.

Fyrir lokaumferðina var sú ótrúlega staða uppi að liðin fjögur gátu öll orðið Íslandsmeistarar. Og þau áttu að mætast innbyrðis.

ÍA, KR og Breiðablik voru öll með 29 stig en Valur var í 4. sætinu, aðeins stigi á eftir. Skagakonur voru á toppnum, í bestu stöðunni og eina liðið sem þurfti ekki að treysta á að önnur úrslit féllu með þeim til að verða meistarar. ÍA sótti Val heim á meðan KR tók á móti Breiðabliki.

Á toppnum í eina umferð

Eins og staðan var í hálfleik var Valur meistari, enda 2-0 yfir gegn ÍA á meðan staðan var jöfn hjá KR og Breiðabliki, 1-1. 

Kristín Anna Arnþórsdóttir og Bryndís Valsdóttir skoruðu mörk Valskvenna en þess má geta að sú fyrrnefnda er mamma systranna í Blikaliðinu, Ástu Eirar og Kristínu Dísar. Kristínarnar tvær mættu til Helenu Ólafsdóttur, sem lék einmitt með KR 1991, í Bestu upphitunina í ágúst en þáttinn má sjá hér fyrir neðan.

Í seinni hálfleik í lokaumferðinni 1991 snerist taflið hins vegar Breiðabliki í vil. Kristrún Lilja Daðadóttir og Elísabet Sveinsdóttir skoruðu báðar og tryggðu Blikum 1-3 sigur. Á meðan var staðan á Hlíðarenda óbreytt.

Breiðablik fór því á toppinn í fyrsta og eina skiptið um sumarið og stóð uppi sem Íslandsmeistari annað árið í röð. Valur lenti í 2. sæti, ÍA í 3. sætinu og KR í því fjórða.

Vonbrigðin voru mikil fyrir KR-inga sem voru á toppnum nær allt tímabilið en fengu aðeins eitt stig í síðustu þremur leikjum sínum. KR þurfti því að bíða enn eftir sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í kvennaflokki en þeirri bið lauk loks tveimur árum seinna.

„Þetta er alveg ólýsanleg tilfinning. Ég vil þakka KR og öllum liðunum sem við höfum leikið við í sumar fyrir skemmtilegt mót. Að vinna þennan titil var eitthvað sem enginn bjóst við,“ sagði Guðjón Karl Reynisson, þjálfari Breiðabliks, við DV eftir að titilinn var í höfn. 

„Byrjunin á mótinu var ekki nógu góð hjá okkur en seinni hluta móts small þetta saman. Ég hef fámennan en samheldinn hóp sem hefur æft vel. Og ég þakka samheldninni fyrst og fremst þennan árangur.“

Umfjöllun DV um lokaumferðina 1991.úrklippa úr dv 9. september 1991

Elsti leikmaður deildarinnar þrítugur

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan úrslitin um Íslandsmeistaratitil kvenna réðust 1991. Umfjöllunin um lokaumferðina var til að mynda frekar lítil í dagblöðunum, bikarúrslitaleikurinn fór ekki fram á Laugardalsvelli heldur í Mosfellsbæ og Ásta B. Gunnlaugsdóttir hjá Breiðabliki var elsti leikmaður deildarinnar en hún var þrjátíu ára og 117 daga gömul í lokaumferðinni að því er fram kemur í Íslenskri knattspyrnu. Það þykir ekki hár aldur í dag.

Meðal annarra þekktra leikmanna í Íslandsmeistaraliði Breiðabliks 1991 má tiltaka áðurnefnda Kristrúnu Lilju, Ásthildi Helgadóttur, Sigrúnu Óttarsdóttur og Vöndu Sigurgeirsdóttur, fyrrverandi landsliðsþjálfara og formann KSÍ.

Breiðablik er sigursælasta lið íslenska kvennaboltans með átján Íslandsmeistaratitla. Valur kemur þar á eftir með fjórtán. Valskonur hafa unnið titilinn undanfarin þrjú ár og það kemur í ljós í dag hvort Íslandsmeistaraskjöldurinn verður áfram á Hlíðarenda eða fer í Smárann.

Leikur Vals og Breiðabliks hefst klukkan 16:15 í dag og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 15:45.


Tengdar fréttir

Hitað upp fyrir upp­gjör bestu liða landsins

Í dag mætast Valur og Breiðablik í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil kvenna í fótbolta. Valur er ríkjandi Íslands- og bikarmeistari en Valskonur lögðu Blika einmitt í úrslitum Mjólkurbikarsins.

„Við höfum líka mikið af vopnum í okkar búri“

„Mjög góða. Búnar að halda spennustiginu nokkuð vel. Erum, tilbúnar í þetta,“ sagði  Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, aðstoðarþjálfari Vals, um leik morgundagsins sem sker úr um hvort Íslandsmeistaratitillinn verði áfram á Hlíðarenda eða færi sig yfir í Kópavog.

Verður áhorfendametið slegið á morgun?

Valur og Breiðablik mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í Bestu deild kvenna á morgun. Búast má við fjölmenni á leiknum á N1-vellinum á Hlíðarenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×