Erlent

Ung kona látin eftir skot­á­rás í Ísrael

Jón Þór Stefánsson skrifar
Árásin átti sér stað í Beersheba í Ísrael.
Árásin átti sér stað í Beersheba í Ísrael. Getty

Nokkrir eru særðir og einn hið minnsta er látinn eftir skotárás á strætóstoppistöð í borginni Beersheba í Ísrael. BBC greinir frá þessu.

25 ára gömul kona er látin, og þá er haft eftir sjúkraliðum að tíu hið minnsta séu særðir og þar af séu nokkrir með skotsár.

Lögreglan segir að talið sé að um hryðjuverkaárás sé að ræða. Búið sé að fella árásarmanninn.

Talið er að árásin hafi átt sér stað við útibú McDonalds við aðalstrætóstöðina í Beersheba.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×