Innlent

Kvíðin í að­draganda ham­fara og spenna í þing­heimi

Samúel Karl Ólason skrifar
Sindri Sindrason segir kvöldfréttir.
Sindri Sindrason segir kvöldfréttir.

Óttast er að fellibylurinn Milton, sem skellur á Flórída af fullum þunga í nótt, verði mannskæður og hafi katastrófískar afleiðingar víða í ríkinu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Íslending á hættusvæði sem segir biðina eftir hamförum kvíðvænlega.

Boðað hefur verið til kertavöku við Tjörnina í Reykjavík til að minnast þeirra kvenna sem ekki eru lengur meðal okkar vegna kynbundins ofbeldis. Við verðum í beinni útsendingu þaðan.

Þá verður rætt við formann Félags heimilislækna sem segir dæmi um að læknar upplifi mikinn þrýsting frá fólki um að fá þyngdarstjórnunarlyf uppáskrifuð. Ásóknin sé gríðarleg.

Við förum einnig yfir spennandi stöðu í pólitíkinni en þingflokksformenn VG og Sjálfstæðisflokks þverneita að fjárstyrkir til stjórnmálaflokkanna séu ástæða þess að ríkisstjórnin ætli að þrauka út kjörtímabilið. Flokkarnir eiga von á tugum, og jafnvel hundruð, milljóna styrkveitingu í lok janúar

Þá verðum við einnig í beinni frá Kaupmannahöfn þar sem opinberri heimsókn forsetans er að ljúka, kynnum okkur úrræði sem gagnast þeim sem þjást af langtímaeinkennum covid og verðum í beinni frá forsýningu nýrrar íslenskrar bíómyndar.

Í Sportpakkanum verður rætt við þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta sem segir skipulagningu stærstu verðlaunahátíðar þeirra fáránlega og í Íslandi í dag hittum við aðalleikara Glæstra vona.

Þetta og margt fleira í opinni dagskrá á samtengdum rásum Bylgjunnar, Stöðvar 2 og Vísis klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×