Árásin er sögð hafa verið gerð af sjóher Úkraínu og er talið að notast hafi verið við svokallað Neptune-eldflaug, sem er úkraínsk hönnun en þær eru hannaðar til að granda skipum. Umrædd vöruskemma er nærri Oktyabrskiy í Krasnodar-héraði í Rússlandi.
Í frétt Forbes segir að frá því Rússar fengu fyrstu Shahed-drónana frá Íran árið 2022 hafi þeir notað rúmlega átta þúsund slíka í Úkraínu. Úkraínumenn segjast skjóta flesta þeirra niður en nokkrir komast alltaf í gegn og valda skemmdum. Hver dróni ber um fimmtíu kíló af sprengiefni og sumir þeirra fljúga með hefðbundnum hreyflum en aðrir með þotuhreyflum.
Sjá einnig: Hafa fengið skotflaugar frá Íran
Reynist það rétt að Rússar hafi misst fjögur hundruð dróna mun það að öllum líkindum koma niður á árásum þeirra um tíma. Rússar geta þó fengið fleiri frá Íran og eru byrjaðir að framleiða sína eigin í austanverðu Rússlandi.
Úkraínumenn hafa á undanförnum vikum gert ítrekaðar árásir á vopnageymslur Rússa, olíugeymslur og önnur skotmörk, bæði með drónum og eldflaugum en ekki hefur fengist leyfi til að nota vopn frá bakhjörlum Úkraínu til þessara árása. Þær hafa þó nokkrum sinnum borið árangur.
Sjá einnig: Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í ávarpi í kvöld að Úkraínumenn þyrftu að koma höndum yfir betri langdrægari eldflaugar og nota þær með áframhaldandi árangri. Úkraínumenn hafa unnið hörðum höndum að þróun eigin eldflauga og dróna til að nota gegn Rússum.
Samkvæmt frétt Reuters sagði Selenskí að sérstök áhersla væri lögð á eldflaugaþróun ríkisins og enn væri verið að spýta í lófana á því sviði.
Rustum Umerov, varnarmálaráðherra Úkraínu, sagði í síðasta mánuði að Úkraínumenn myndu á næstunni tilkynna þróun nýrra eldflauga og þar á meðal skotflauga, sem erfiðara er að skjóta niður með loftvarnarkerfum.