Innlent

Ís­lendingar eiga ekki að að­laga sig inn­flytj­endum heldur öfugt

Heimir Már Pétursson skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var gestur í Samtalinu hjá Heimi Má í dag.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var gestur í Samtalinu hjá Heimi Má í dag. Vísir/Vilhelm

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir að vogunarsjóðir hafi hótað honum þegar hann var forsætisráðherra vegna þess að hann vildi láta sjóðina taka skellinn af falli íslensku bankanna.

Í Samtalinu hjá Heimi Má í dag sagði Sigmundur Davíð Miðflokkinn nú uppskera af stefnufesti sinni, meðal annars í útlendingamálum. Flokkurinn væri með svipaða stefnu og danskir jafnaðarmenn, um að allir sem birtust á landamærunum og sæktu um hæli hér á landi ættu að fá synjun og missa réttinn til hælisleitar.

„Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur sagði að markmiðið væri að enginn mætti til landsins. Enginn kæmi til að sækja þar um hæli. Menn myndu taka við fólki, flóttamönnum, annars staðar frá, ef þeir sæktu um annars staðar. En ef þeir kæmu til landsins og ætluðu að sækja um þar þá væri þeim vísað burtu,“ sagði formaður Miðflokksins.

Þá líst honum ekki á þá stefnu sem stjórnvöld reka í dag varðandi þann mikla fjölda útlendinga sem hér vinna.

„Nú eru stjórnvöld farin að tala um inngildingu sem er eitthvað nýyrði og andstaða aðlögunar. Af því að inngilding á að tákna það að við eigum að aðlaga okkur að öðrum. Þannig getur þú ekki rekið samfélag,” sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Hér fyrir neðan má sjá Samtalið í heild sinni.


Tengdar fréttir

Sig­mundur komst á for­síðuna en ekki Messi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, telur furðulegt að hann hafi verið settur á forsíðu þýsks blaðs þar sem fjallað var um Panamaskjölin en ekki aðrir hærra settir í samfélaginu, þeirra á meðal heimsfrægir íþróttamenn og aðrir stjórnmálaleiðtogar. Enginn íslenskur stjórnmálamaður hafi jafnoft þurft að þola það að reynt sé að bola honum úr starfi á þessari öld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×