Innlent

Verk­falls­nem­endur með á­hyggjur af náminu og tendrun jóla­geitarinnar

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Sindri Sindrason les kvöldfréttir á Stöð 2 í kvöld.
Sindri Sindrason les kvöldfréttir á Stöð 2 í kvöld. Vilhelm

Ekki er útilokað að boðað verði til verkfalla í fleiri skólum en að óbreyttu leggja kennarar í átta skólum niður störf síðar í mánuðinum. Nemendur segjast spenntir að fá lengra vetrarfrí en hafa áhyggjur af áhrifum á námið.

Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við foreldra, börn og formann Kennarasambandsins um fyrirhugaðar aðgerðir.

Landspítalinn hefur aldrei staðið frammi fyrir öðrum eins innlagnarvanda og spítalinn hefur vikum saman verið á hæsta viðbragðsstigi. Við ræðum við framkvæmdastjóra hjúkrunar sem segir starfsemina ekki þola ástandið mikið lengur.

Íslenskur royalisti er alls ekki á því að klæðaburður Björns Skúlasonar forsetamanns í opinberri heimsókn forsetahjónanna til Kaupmannahafnar hafi verið of hversdagslegur. Það olli henni hins vegar vonbrigðum að Halla Tómasdóttir skyldi aðallega hafa talað ensku. Kristín Ólafsdóttir gerir upp fyrstu opinberu heimsókn forsetahjónanna.

Þá verður farið yfir mál Alberts Guðmundssonar sem var í dag sýknaður af ákæru um nauðgun, við sjáum myndir frá eyðileggingu á Flórída eftir Milton og verðum í beinni frá tendrun jólageitarinnar víðfrægu hjá Ikea.

Í Sportpakkanum verður rætt við þjálfara íslenska landsliðsins um framtíð Alberts Guðmundssonar og í Íslandi í dag hittum við Helgu Braga sem verður sextug á árinu og aldrei verið betri.

Þéttur fréttapakki í opinni dagskrá á samtengdum rásum Bylgjunnar, Stöðvar 2 og Vísis klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×