Fótbolti

Myndaveisla frá tveimur gjör­ó­líkum hálfleikjum hjá ís­lensku strákunum

Sindri Sverrisson skrifar
Stefán Teitur Þórðarson er búinn að festa sig í sessi á miðju Íslands en verður þó í banni í næsta leik vegna gula spjaldsins sem hann fékk í gær.
Stefán Teitur Þórðarson er búinn að festa sig í sessi á miðju Íslands en verður þó í banni í næsta leik vegna gula spjaldsins sem hann fékk í gær. vísir/Anton

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fékk heldur betur færin til að tryggja sér sigur á móti Wales í Þjóðadeildinni á Laugardalsvellinum í gærkvöldi en slakur fyrri hálfleikur þýddi að íslensku strákarnir voru tveimur mörkum undir í hálfleik.

Íslenska liðið mætti miklu grimmara til leiks í seinni hálfleiknum og tókst að jafna metin með tveimur mörkum á þremur mínútum. Íslenska liðið fékk færi til að skora sigurmarkið en tókst ekki að bæta við og 2-2 jafntefli var því niðurstaðan.

Anton Brink, ljósmyndari Vísis, var á leiknum og náði þessum flottu myndum hér fyrir neðan.

Logi Tómasson á ferðinni eins og svo oft í leiknum.vísir/Anton
Sverrir Ingi Ingason og Daníel Leó Grétarsson voru í miðri vörn Íslands en sköpuðu stundum hættu þegar þeir fóru fram í föstum leikatriðum.vísir/Anton
Togað í Orra Óskarsson í teignum en ekkert dæmt.vísir/Anton
Andri Lucas Guðjohnsen fagnar markaskoraranum Loga Tómassyni.vísir/Anton
Orri Óskarsson í baráttu við Ben Davies, fyrirliða Wales í leiknum.vísir/Anton

Byrjunarlið Íslands gegn Wales.vísir/Anton
Stuðningsmenn Wales fjölmenntu til Íslands og létu vel í sér heyra.vísir/Anton
Jón Dagur Þorsteinsson var svo nálægt því að skora sigurmark í lok leiksins. Skot hans fór í stöng.vísir/Anton
Andri Lucas Guðjohnsen var afar nærri því að skora í fyrri hálfleik en Neco Williams bjargar hér á marklínu.vísir/Anton
Tólfan stóð með sínum mönnum allan leikinn í gær.vísir/Anton
Valgeir Lunddal stóð vel fyrir sínu.vísir/Anton
Andri Lucas Guðjohnsen með skalla.vísir/Anton
Orri Óskarsson lét hafa mikið fyrir sér í gær og sýndi af hverju hann er mættur í efstu deild Spánar.vísir/Anton
Stefán Teitur Þórðarson með skot í fyrri hálfleiknum.vísir/Anton
Mikal Egill Ellertsson er leikinn með boltann og hefur verið að spila í efstu deild Ítalíu í haust.vísir/Anton
Jón Dagur Þorsteinsson fórnar höndum, sennilega eftir að skot hans fór í stöng í lok leiks.vísir/Anton
Valgeir Lunddal að eilífu fljótari, eða að minnsta kosti búinn að hrista af sér Walesverja þarna.vísir/Anton
Jón Dagur Þorsteinsson fylgist með því hvað Neco Williams, bakvörður Nottingham Forest, gerir.vísir/Anton
Mikael Egill Ellertsson átti mjög frísklega innkomu í íslenska liðið í seinni hálfleik.vísir/Anton
Gylfi Þór Sigurðsson hefur glímt við meiðsli í baki en kom inn á í lok leiks.vísir/Anton
Logi Tómasson var aðalmaðurinn á Laugardalsvelli í gærkvöld.vísir/Anton
Íslenskir stuðningsmenn létu þá velsku ekki yfirgnæfa sig.vísir/Anton
Fyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson mundaði skotfótinn í seinni hálfleik.vísir/Anton
Alfreð Finnbogason hefur lagt landsliðsskóna á hilluna. Hann var heiðraður fyrir sín störf í þágu þjóðar, fyrir leikinn í gær.vísir/Anton
Willum Þór Willumsson hefur oft átt betri dag en gegn Wales í gærkvöld og var tekinn af velli í hálfleik.vísir/Anton
Logi Tómasson var vinsæll eftir leik og þessir strákar vildu ólmir fá treyjuna hans.vísir/Anton
Kolbeinn Birgir Finnsson gerði slæm mistök í fyrri hálfleiknum en lærir af þeim.vísir/Anton
Åge Hareide sá tvo gjörólíka hálfleiki hjá sínum mönnum í gær.vísir/Anton
Sverrir Ingi Ingason og Jóhann Berg Guðmundsson ánægðir með Loga Tómasson markaskorara.vísir/Anton
Logi Tómasson bjó til bæði mörk Íslands, jafnvel þó að seinna markið verði skráð sem sjálfsmark markvarðarins Danny Ward.vísir/Anton

Tengdar fréttir

Bella­my skammaði blaða­menn eftir leik

Craig Bellamy þjálfari landsliðs Wales var ekki alls kostar sáttur með þá bresku blaðamenn sem mættir voru á blaðamannfund eftir jafntefli Íslands og Wales í gær. Bellamy hrósaði íslenska liðinu í hástert á fundinum.

Twitter um leikinn: Haltu bara á­fram að skína Logi

Líkt og áður þegar íslenska landsliðið í knattspyrnu spilar höfðu stuðningsmenn liðsins mikið að segja á samfélagsmiðlum. Þetta hafði þjóðin að segja um leik Íslands og Wales.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×