Innherji

„Risa­stórt“ fjár­mögnunar­gat sem þarf að brúa frestist salan á Ís­lands­banka

Hörður Ægisson skrifar
Vinna fjármála- og efnahagsráðuneytisins við undirbúning að áframhaldandi söluferli Íslandsbanka hefur staðið yfir að undanförnu, meðal annars með ráðningum á fjármála- og lögfræðilegum ráðgjöfum, og væntingar verið um að hægt yrði að hrinda því í framkvæmd á allra næstu vikum. Nú er ljóst að þau áform eru í uppnámi.
Vinna fjármála- og efnahagsráðuneytisins við undirbúning að áframhaldandi söluferli Íslandsbanka hefur staðið yfir að undanförnu, meðal annars með ráðningum á fjármála- og lögfræðilegum ráðgjöfum, og væntingar verið um að hægt yrði að hrinda því í framkvæmd á allra næstu vikum. Nú er ljóst að þau áform eru í uppnámi. Vilhelm Gunnarsson

Ólíklegt er að áform stjórnvalda um að selja um tuttugu prósenta hlut í Íslandsbanka nái fram að ganga á komandi vikum sem þýðir að ríkissjóður þarf að leita annarra fjármögnunarleiða til að mæta áætlaðri fjárþörf sinni á þessu ári. Þrátt fyrir pólitíska óvissu hafa viðbrögð fjárfesta á markaði ekki verið afgerandi – krónan styrktist lítillega og ávöxtunarkrafa skuldabréfa heilt yfir lækkað – en ósennilegt er að stjórnarslitin muni setja í uppnám væntingar um frekari vaxtalækkanir þegar peningastefnunefnd kemur saman í næsta mánuði, að mati sérfræðinga á skuldabréfamarkaði.


Tengdar fréttir

Hag­kerfið á vendi­punkti og hætta á að tekjum sé of­spáð en gjöldin van­metin

Mikil vaxtabyrði ríkissjóðs, umtalsvert hærri borið saman við flestar aðrar Evrópuþjóðir, þýðir að það þarf að nást meiri afgangur á frumjöfnuði en núverandi áætlanir gera ráð fyrir eigi að takast að grynnka skuldahlutfallinu, að mati Samtaka atvinnulífsins. Hættan er að hagkerfið sé á vendipunkti, þar sem tekjum sé ofspáð en gjöldum áfram vanspáð, en Seðlabankinn telur að ljósi þróunar verðbólgu sé „brýnt“ að ekki verði vikið frá því að beita aðhaldi í ríkisfjármálum á komandi misserum.

Betra að byrja en bíða þangað til hag­kerfið er „sannar­lega komið í kreppu“

Peningastefnunefnd mat áhættuna af því að byrja vaxtalækkunarferlið minni heldur en að bíða enn lengur og þurfa þá mögulega ráðast í hraðar lækkanir samhliða því að hagkerfið væri að sigla inn í „kreppu,“ að sögn seðlabankastjóra, sem hefur væntingar um að verðbólgan sé að fara koma skarpt niður og aðhaldsstigið gæti því aukist enn frekar. Falli hlutirnir með nefndinni fram að næsta fundi seint í nóvember megi búast við frekari lækkunum en nefndin var ekki sérstaklega með augun á vaxtalækkunum stóru erlendu seðlabankanna að undanförnu við ákvörðun sína þótt ljóst sé að Ísland er mjög tengt þróuninni í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×