Erlent

Leggur til að beita hernum gegn and­stæðingum sínum

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump á sviði í Arizona í gær.
Donald Trump á sviði í Arizona í gær. AP/Evan Vucci

Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segist mögulega vilja siga þjóðvarðliði ríkisins eða bandaríska hernum, gegn „innri óvinum“. Fólki sem hann lýsti um helgina sem „öfga-, vinstri geðsjúklingum“ en slíka orðræðu hefur hann ítrekað notað um pólitíska andstæðinga sína.

Þetta sagði Trump í viðtali á Fox í gær. Þá var hann spurður út í mögulega utanaðkomandi ógn sem gæti valdið usla á kjördag. Í stað þess að ræða það sneri Trump sé að innri óvinum.

„Ég held að stærra vandamálið sé innri óvinurinn,“ sagði Trump. „Við erum með mjög slæmt fólk. Við erum með sjúkt fólk, öfga- vinstri geðsjúklinga og ég held að þeir séu stóra… og það væri mjög auðvelt að taka á því, ef þörf er á, með þjóðvarðliðinu, eða ef alger þörf er á, með hernum.“

Í spilaranum hér að neðan má sjá ummæli Trumps sem um ræðir.

Eins og fram kemur í frétt AP fréttaveitunnar hefur Trump mikið talað um „innri óvini“ (e. Enemy within) í ræðum og ávörpum að undanförnu. Á laugardaginn notaði hann það orðalag um Adam Schiff, þingmann Demókrataflokksins, sem stýrði rannsókn fulltrúadeildarinnar sem leiddi til fyrstu ákærunnar gegn Trump fyrir embættisbrot.

Trump og ráðgjafar hans hafa unnið að áætlun um að breyta áherslum herafla Bandaríkjanna, verði hann forseti á nýjan leik. Meðal þess sem þessi áætlun er sögð fela í sér er að flytja þúsundir hermanna Bandaríkjanna á erlendri grundu aftur heim og koma þeim fyrir á landamærunum við Mexíkó.

Þá heitir Trump því að „lýsa yfir stríði“ við stór glæpasamtök sem flytja fíkniefni til Bandaríkjanna og nota sjóherinn til að mynda herkví um Bandaríkin og leita að fentaníli um borð í skipum sem siglt er þangað.

Trump hefur einnig sagt að hann muni nota þjóðvarðlið Bandaríkjanna og mögulega herinn við að flytja milljónir farandfólks sem hefur ekki fengið dvalarleyfi í Bandaríkjunum úr landi.

Vildi siga hernum á mótmælendur

Trump hefur í gegnum árin oft leitað á náðir hersins. Ráðgjafar hans hafa farið á leitir við herinn um að Trump verði fluttur um í flugvél hersins í kosningabaráttunni, vegna tilrauna til að ráða hann af dögum.

Á fyrsta kjörtímabili hans kallaði Trump ítrekað eftir því að hernum yrði beitt gegn mótmælendum og óreiðarseggjum í kjölfar dauða George Floyd, sem leiddi til umfangsmikilla mótmæla og óeirða víðsvegar í landinu.

Forsvarsmenn hersins mótmæltu því. Herforinginn Mark Milley, sem var formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, gaf til að mynda út minnisblað um að bandarískir hermenn sverðu þess eið að verja stjórnarskrá Bandaríkjanna og gildi hennar.

Nýverið kom fram að Milley hefði kallað Trump fasista. Í nýrri bók blaðamannsins Bob Woodward, er haft eftir Milley að hann hafi efast um geðheilsu Trumps en sé nú sannfærður um að Trump sé fasisti.

Þá hefur Milley lýst yfir áhyggjum af því að hann óttast að verði Trump forseti aftur muni hann reyna að hefna sín á Milley og draga hann fyrir dóm. Trump hefur áður sagt að Milley ætti að vera tekinn af lífi fyrir landráð.


Tengdar fréttir

Birtu gögn um heilsu Harris og sjúkrasögu hennar

Framboð Kamölu Harris birti í dag skýrslu um heilsu varaforsetans og forsetaframbjóðandans þar sem niðurstaðan er sú að hún sé bæði líkamlega og andlega fær um að sinna forsetaembættinu.

Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi

Verulega hefur dregið úr smáum fjárveitingum til framboðs Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Hann er sagður hafa leitað meira til auðjöfra til að fylla upp í eyðurnar en Demókratar hafa safnað mun meira af peningum en hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×