Körfubolti

„Gerðum okkur stundum lífið erfiðara en það þurfti að vera“

Stefán Marteinn skrifar
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Keflavíkur
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Keflavíkur Vísir/Diego

Keflavík heimsótti Val í N1-höllinni þegar 3. umferð Bónus deild kvenna hélt áfram göngu sinni. Í miklum baráttuleik var það Keflavík sem hafði að lokum betur 73-79.

„Við byrjuðum mjög vel og það kannski gaf einhver fyrirheit um eitthvað en ég þóttist vita að Valur er með gott lið og er á heimavelli þannig það kom svo sem ekkert á óvart að þær kæmust með einhverjum hætti inn í leikinn aftur. Við erum fyrst og fremst ánægðar með sigurinn.“ Sagði Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Keflavíkur eftir sigurinn í kvöld.

„Við vorum að spila á köflum ágætlega en svo á köflum vorum við að spila líka með miklu fáti og gerðum okkur stundum lífið erfiðara en það þurfti að vera.“

Keflavík náði á kafla hátt í tuttugu stiga forystu en misstu það niður rétt fyrir hálfleik.

„Mér fannst kannski ákvarðanartökur og við duttum aðeins niður í vörninni og talið var aðeins minna. Þær gengu á lagið og fengu nokkrar auðveldar körfur og svo voru þær okkur mjög erfiðar í fráköstum. Voru að fá mikið af sénsum númer tvö og jafnvel þrjú. Það kannski gerði það að verkum að munurinn minnkaði verulega. Sem betur fer náðum við alltaf að spýta í og halda þeim aðeins frá okkur sem er mjög mikilvægt þegar þú ert að spila á útivelli. Við gerðum það sem þurfti en ekkert í raun mikið meira en það. Við viljum spila betur en þetta.“

Keflavík var undir í frákasta baráttunni í kvöld og tók Valur átján fleiri fráköst en Keflavík en það kom Friðrik Inga þó ekki á óvart.

„Nei í rauninni ekki ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Við höfum verið að tapa frákasta baráttunni í flestum leikjum en við höfum kannski verið að vinna aðrar baráttur á vellinum þannig að í raun nei, ef ég á að vera hreinskilinn þá kom það ekki á óvart þannig lagað. Við viljum verða betri í því og þetta snýst ekki um það að við séum lægri eða lávaxnari á vellinum. Þetta snýst um ákveðið viðhorf og hvernig leikmenn eru staðsettir og annað. Við erum að reyna að vinna í því og laga.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×