Enski boltinn

Ræddu við tíu en fáir kannast við sím­tal

Valur Páll Eiríksson skrifar
Eddie Hower (t.h.) heyrði ekki frá enska knattspyrnusambandinu.
Eddie Hower (t.h.) heyrði ekki frá enska knattspyrnusambandinu. EPA-EFE/ADAM VAUGHAN

Eddie Howe og Sean Dyche segjast hvorugur hafa fengið símtal frá enska knattspyrnusambandinu vegna landsliðsþjálfarastarfs Englands. Sambandið kveðst hafa rætt við tíu aðila áður en það réði Thomas Tuchel til starfa.

Tuchel var ráðinn í vikunni sem nýr þjálfari enska karlalandsliðsins og tekur hann við keflinu af Gareth Southgate sem sagði upp eftir EM í sumar. Lee Carsley hefur stýrt liðinu tímabundið og mun klára Þjóðadeildina áður en Tuchel tekur við taumunum um áramótin.

Enska knattspyrnusambandið gaf út að það hefði rætt við tíu þjálfara varðandi möguleikann á að taka við liðinu en tveir enskir þjálfarar segjast ekki hafa fengið símtal.

Dyche sá Howe fyrir sér sem vænlegan kost og vildi Englending í starfið.Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images

Sean Dyche, þjálfari Everton, var spurður út í málið á blaðamannafundi í vikunni og segist ekki hafa fengið símtal. Hann segir best að Englendingur stýri liðinu en styður þó við bakið á Tuchel.

„Ég held að flestir hafi viljað enskan þjálfara, það er almenn skoðun á meðal fólk innan fótboltans sem ég hef rætt við, og almenningur sammælist því, að því er virðist,“ segir Dyche sem hélt að Eddie Howe, þjálfari Newcastle, væri vænlegur kostur.

„Það var rætt um hann, réttilega. Hann er maður sem ég sá fyrir mér sem næsta þjálfara Englands.“

Eddie Howe var vissulega sterklega orðaður við stöðuna en kveðst ekki hafa heyrt frá sambandinu.

Ég fór ekki í viðtal vegna starfsins. Það var enginn frá enska knattspyrnusambandinu sem hafði samband við mig, sagði Howe á blaðamannafundi fyrir leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.


Tengdar fréttir

Neville um Tuchel: „Ákveðin vonbrigði“

Gary Neville, sparkspekingur og fyrrum landsliðsmaður Englands, segist fyrir ákveðnum vonbrigðum að Thomas Tuchel hafi verið ráðinn þjálfari enska landsliðsins. Hann sé þó góður kostur í starfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×