Lífið

Cher­yl kvartar yfir fjöl­miðla­um­fjöllun um Liam Payne

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Liam og Cheryl voru par 2016 til 2018, og saman eiga þau strákinn Bear.
Liam og Cheryl voru par 2016 til 2018, og saman eiga þau strákinn Bear. Getty

Cheryl Ann Tweedy, söng- og sjónvarpskona og barnsmóðir Liam Payne, hefur tjáð sig í fyrsta sinn um dauða Liams í færslu á Instagram í dag. Nú muni sonur þeirra aldrei sjá föður sinn aftur.

Liam Payne, fyrrverandi söngvari strákahljómsveitarinnar One direction, lést í fyrradag eftir að hafa fallið undir áhrifum áfengis og fíkniefna fram af svölum þriðju hæðar hótels í argentísku höfuðborginni Buenos Aires.

Liam og Cheryl voru saman árin 2016 til 2018, og eiga saman sjö ára strák sem heitir Bear.

„Nú þegar heimurinn hefur hrunið og ég reyni að feta mig áfram á þessum skelfilega tíma vil ég minna fólk vinsamlegast á það að við höfum tapað mannslífi,“ segir hún á Instagram, í lauslegri þýðingu.

„Liam var ekki bara poppstjarna, hann var sonur, bróðir, frændi, kær vinur og faðir sonar síns. Sonar sem fær aldrei að sjá föður sinn á ný,“ segir hún.

„Það sem truflar mig mest er sú staðreynd að sonur okkar Bear mun hafa aðgang að öllum þessum ógeðslegu fréttum sem skrifaðar hafa verið undanfarna daga, og það brýtur í mér hjartað að ég geti ekki verndað hann frá því að sjá það í framtíðinni,“ segir Cheryl.

Hún biðlar til fjölmiðla að íhuga vandlega hvaða tilgangi slíkar fréttir þjóna, öðrum en að særa fólk sem stóð honum nærri.

Simon Cowell miður sín

Simon Cowell, frægi dómarinn í X-factor, minnist Liams einnig í færslu á Instagram í dag.

Liam Payne tók tvisvar sinnum þátt í X-factor sem unglingur, áður en hljómsveitin One direction varð til.

„Liam, ég er algjörlega miður mín. Ég er tómur að innan. Ég vil að allir viti hversu mikið ég virði þig og elska,“ segir hann meðal annars.

„Ég þurfti að segja þér þegar þú varst 14 ára að þetta væri ekki þinn tími, og við lofuðum báðir að við myndum hittast aftur. Margir hefðu gefist upp. Það gerðir þú ekki. Þú komst aftur og nokkrum mánuðum síðar þekktu allir Liam Payne,“ segir Simon.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×