Handbolti

Dana Björg markahæst í sigur­leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði sex mörk í dag og var markahæst.
Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði sex mörk í dag og var markahæst. @voldahandball

Dana Björg Guðmundsdóttir, nýjasta landsliðskona Íslands í handbolta, var markahæst í dag þegar lið hennar fagnaði sigri í norsku b-deildinni.

Dana og félagar í Volda unnu þá sjö marka heimasigur á Nordstrand, 24-17, eftir frábæran seinni hálfleik.

Það gekk lítið hjá Dönu og félögum í fyrri hálfleik. Hún klikkaði á báðum skotum sínum og Volda var fjórum mörkum undir í hálfleik, 6-10.

Volda stelpurnar töluðu greinilega vel saman í hálfleik því það var allt annað að sjá þær í seinni hálfleiknum sem Volda vann 18-7.

Dana nýtti líka öll sex skotin sín í seinni hálfleik, fjögur komu úr horninu og tvö úr hraðaupphlaupum samkvæmt tölfræði norska sambandsins.

Volda hefur unnið alla sex leiki sína og komst upp að hlið Fjellhammer á toppnum sem er einnig með fullt hús.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×