Haaland með stór­brotið mark í laufléttum sigri City manna

Erling Haaland fagnar öðru marka sinna fyrir Manchester City í kvöld.
Erling Haaland fagnar öðru marka sinna fyrir Manchester City í kvöld. Getty/ Robbie Jay Barratt

Manchester City átti ekki í miklum vandræðum í kvöld þegar liðið vann sannfærandi 5-0 sigur á Spörtu Prag í Meistaradeildinni.

Leiknum verður líkleg minnst fyrir stórbrotið mark Norðmannsins Erling Braut Haaland þegar hann kom liðinu í 2-0 snemma í seinni hálfleiknum. Hann hélt því áfram að bæta við magnaða tölfræði sína í Meistaradeildinni.

Það er fyrra mark hans í leiknum sem mun stela fyrirsögnunum. Haaland skoraði þá með ótrúlegri viðstöðulausri hælspyrnu fyrir aftan bak. Hann sjálfur gat ekki annað en brosað eftir þetta ótrúlega mark.

Mark Haaland kom á 58. mínútu leiksins eftir fyrirgjöf frá Savinho. Hann bætti við öðru marki sínu og kom City í 4-0 á 68. mínútu.

City hafði þá skoraði þrjú mörk á tíu mínútum því John Stones hafði skoraði þriðja markið á 64. mínútu.

Phil Foden kom City í 1-0 strax á þriðju mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Manuel Akanji.

Fimmta markið skoraði Matheus Nunes úr vítaspyrnu en hann átti góðan leik og hafði gefið tvær stoðsendingar.

City menn gerðu jafntefli í fyrstu umferð en brunuðu upp stigatöfluna með þessum öðrum örugga sigri sínum í röð.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira