Tónlist

Til­einkar lagið Grind­víkingum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Geir Ólafs gefur Grindvíkingum lag.
Geir Ólafs gefur Grindvíkingum lag. Myndir/Arnþór

Tónlistarmaðurinn Geir Ólafsson gaf nýverið út lagið „Bærinn okkar“ sem hann tileinkar Grindvíkingum. Hann segir að hugur hans sé sérstaklega hjá börnunum sem hafa verið rifin upp með rótum frá vinum sínum. 

Í samtali við Vísi segist Geir hafa unnið lagið með hópi bandarískra tónlistarmanna og segir hann hugmyndina hafa komið upp eftir vikulega fundi þeirra þegar talið barst ætið að líðan bæjarbúa. 

„Ég hef verið að funda með þeim einu sinni í viku og barst talað alltaf að íbúum Gindavíkur. Þeir höfðu miklar áhyggjur af því hvernig bæjarbúar hefðu það, sérstaklega börnin sem voru rifin upp með rótum úr skólunum og frá vinum sínum. Mér fannst það áhugavert að þeir tóku sér tíma til að spyrja um okkur og þennan lítla bæ í norðurballar hafi,“ segir Geir.

„Þetta er kærleiksverkefni með virðingu við Grindvíkinga og ætlum við að láta allan ágóða af laginu renna beint til Gríndvikinga.“

Grindavíkurbær opnaði aftur fyrr í vikunni og er nú á óvissustigi, en aðgengi að bænum hefur verið verulega takmarkað síðustu misserin vegna eldsumbrota.

Spurður hvort hann ætli að sýna tónlistarmönnunum bæinn, svarar Geir játandi: „Stefnan mín er að hitta þá hjá bæjarskrifstofunni í Grindavík og kíkja til bæjarstjórans í kaffi og kleinur.“

Lagið má heyra í spilaranum hér að neðan.

Klippa: Bærinn okkar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×